Search:
Browse by
Collection All
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
Listed communities
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet

Hirsla - Landspítali University Hospital > Journal Editorials (Ritstjórnargreinar) > Icelandic Journal Editorials > Reykingar og ættarsaga um kransæðasjúkdóma [ritstjórnargrein]

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/2336/108217
    Del.icio.us     LinkedIn     Citeulike     Connotea     Facebook     Stumble it!



Title: Reykingar og ættarsaga um kransæðasjúkdóma [ritstjórnargrein]
Authors: Gunnar Sigurðsson
Citation: Læknablaðið 1988, 74(5):177-8
Issue date: 15-May-1988
Abstract: Í athyglisverðri grein sem birtist í þessu hefti Læknablaðsins um brátt hjartadrep á Íslandi í einstaklingum 40 ára og yngri benda höfundar á að nær allir þessir einstaklingar hafi reykt tóbak. Jafnframt höfðu yfir 50% þeirra ættarsögu um kransæðasjúkdóm (1). Þetta er verulega hærra hlutfall en í hóprannsókn Hjartaverndar þar sem 15-20% höfðu ættarsögu um kransæðastíflu (2). Aðrir þekktir áhættuþættir reyndust ekki marktækir í þessari rannsókn ef litið er á meðaltalsgildi, en frá öðrum rannsóknum má ætla að a.m.k. tveir af þessum 40 einstaklingum sem hlutu hjartadrep hafi haft arfbundna hækkun á kólesteróli í blóði (hypercholesterolemia) (3). Rannsóknin undirstrikar því afdrifaríkar afleiðingar reykinga, einkanlega meðal þeirra sem hafa ættarsögu um kransæðasjúkdóm. Þessar niðurstöður koma vel heim við aðrar erlendar rannsóknir (4, 5). Þannig fundu Hopkins og félagar í Utah í hópi kransæðasjúklinga undir 45 ára aldri að 89% þeirra höfðu reykt og 48% höfðu ættarsögu (5). Önnur rannsókn frá Kaliforníu benti til að meira en helmingur af ótímabærum dauðsföllum í ættum með tíð kransæðatilfelli mætti rekja til reykinga (5). Nýleg rannsókn meðal hjúkrunarfræðinga í Boston undirstrikar að þessi aukna áhætta samfara reykingum er engu minni meðal kvenna (6). En afleiðingarnar með tilliti til kransæðasjúkdóma virðast koma áratug seinna. Þó er ljóst að eitthvað meira þarf að koma til en reykingar þar sem meðal Japana sem reykja mikið og hafa háa tíðni háþrýstings eru kransæðasjúkdómar fátíðir. Því er líklegt að til þess að skaðsemi reykinga á æðakerfið komi fram þurfi vissa þéttni LDL-kólesteróIs í blóði en flestir Japanir eru vel undir þeim mörkum. Enn er margt á huldu um hvernig reykingar hafa áhrif á tilurð æðakölkunar og kransæðastíflu.
Description: Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)
Additional Links: http://www.laeknabladid.is
Appears in collections:Icelandic Journal Editorials

Files in this item:
File Description Size Format View/Open
L1988-05-74-R1.pdfAllur texti - Full text139KbAdobe PDFThumbnail
View/Open

All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.

 

OR Logo Powered by Open Repository
Valid XHTML 1.0!