|
Hirsla - Landspítali University Hospital >
Miscellaneous (Önnur verk) >
Icelandic >
Svæfingar á Íslandi í 150 ár : 1856-2006
Please use
this identifier to cite or link
to this item:
http://hdl.handle.net/2336/118529
Del.icio.us
LinkedIn
Citeulike
Connotea
Facebook
Stumble it!
| Title: | Svæfingar á Íslandi í 150 ár : 1856-2006 |
| Authors: | Jón Sigurðsson |
| Citation: | Jón Sigurðsson. Svæfingar á Íslandi í 150 ár : 1856-2006. Garðabær, 2010 |
| Issue Date: | 2010 |
| Abstract: | - ÚR FORMÁLA - Leitast er við að lýsa þróun svæfinga hér á Íslandi og að kynna þá lækna
og aðra heilbrigðisstarfsmenn sem mest hafa komið við sögu. Hins vegar er
erlendum atburðum aðeins að mjög litlu leyti gerð skil. Að baki þróuninni
hér á landi liggur þó yfirleitt flókin atburðarás og þróunarvinna sem íslenskir
læknar hafa lesið um í erlendum læknatímaritum og bókum eða kynnst
erlendis og tekið með sér til landsins.
Gjörgæsludeildir voru settar á laggirnar í byrjun áttunda áratugar tuttugustu
aldar. Þróun svæfinga og gjörgæslu hefur verið mjög samtvinnuð og
því koma gjörgæsludeildir mikið við sögu í bókinni þótt þeirra sé ekki getið
sérstaklega í bókartitli.
Bókin er einkum skrifuð fyrir lækna og samstarfsfólk þeirra. Höfundur
reiknar því með að lesandinn viti deili á helstu persónum í þessari sögu og
hafi einhverja þekkingu á viðfangsefninu en fái við lestur bókarinnar gleggri
mynd af atburðarásinni og geti jafnvel séð sjálfan sig sem sögupersónu
eða
þátttakanda í einhverjum kafla sögunnar. Einnig vonast höfundur til þess að
í framtíðinni muni einhverjum finnast bókin hafa þýðingu sem heimild um
sögu heilbrigðisþjónustunnar í landinu.
Höfundur er læknir. Því er saga þessi einkum skrifuð frá sjónarhóli læknis.
Jafnframt er þó reynt að skyggnast inn í heim annarra heilbrigðisstétta,
einkum hjúkrunarfræðinga, sem gegna sínu hlutverki í sögunni. Höfundur
er meðvitaður um að texti og myndaval hefur viljandi og óviljandi mótast
af því umhverfi sem hann sjálfur starfaði í á svæfinga- og gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut. Jafnvel kann að sýnast sem sumar myndanna
séu úr eins konar „fjölskyldualbúmi“ höfundar. Lesendur bókarinnar munu
einnig sjá að Margrét Jóhannsdóttir svæfingahjúkrunarfræðingur sem starfaði
á svæfingadeild Landspítalans í 35 ár hefur lagt sitt að mörkum með ljósmyndum
sínum til þess að gera sögu þessa myndrænni en ella hefði verið
mögulegt. Færi ég henni bestu þakkir, svo og öðrum sem veittu mér upplýsingar
og aðstoð við gerð bókarinnar.
Meginmarkmið svæfinga er að svipta fólk meðvitund til þess að mögulegt
sé að framkvæma tilteknar læknisfræðilegar aðgerðir á þægilegan og öruggan
hátt. Bók þessi er alls ekki kennslubók í svæfingum. Því er hvorki útskýrt
í bókinni hvaða eiginleika einstök svæfingarlyf hafa né á hvern hátt menn
skuli bera sig að til þess að markmið góðra svæfinga náist. |
| Description: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast bókina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) |
| Appears in Collections: | Icelandic
|
| Files in This Item: |
| File |
Description |
Size |
Format |
View/Open |
| JS-2010.pdf | Allur texti - Full text | 5333Kb | Adobe PDF |  View/Open |
|
All Items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.
|