| Title: | Tíðni og árangur tafarlausra brjóstauppbygginga á Landspítala 2008-2010 |
| Other Titles: | Results of immediate breast reconstructions at Landspítali-The National University Hospital of Iceland, in 2008-2010 |
| Authors: | Katrín Jónsdóttir Svanheiður Lóa Rafnsdóttir Þórdís Kjartansdóttir Höskuldur Kristvinsson Þorvaldur Jónsson Kristján Skúli Ásgeirsson |
| Citation: | Læknablaðið 2012, 98(9):459-63 |
| Issue Date: | Sep-2012 |
| Abstract: | In late 2007, the availability of immediate breast reconstructions increased as a result of the establishment of an oncoplastic breast surgical service at Landspítali-The National University Hospital The aim of this study was to look at the rates and early complications of immediate breast reconstructions in our hospital in 2008-2010 and compare with the results from the UK National Mastectomy and Breast Reconstruction Audit (NMBRA).
This is a retrospective population-based study, including all women who had immediate breast reconstruction at Landspítali in 2008-2010.
319 mastectomies and 157 breast reconstructions were performed. Of these, 98 (62%) were immediate, (mean age 49, 29-69). The immediate breast reconstruction rate was therefore 31%, with a respective 55% for patients 50 years old or younger. In comparison, the rate was 5% in 2000-2005. Immediate reconstructions with an extended autologous latissimus dorsi flap were performed in 25 (26%) cases and implant based reconstructions in the remaining (n=73, 74%). Inpatient complications occurred in 12 (12%) patients and 5 needed reoperation (3 post-operative bleeding, 1 skin necrosis, 1 imminent LD-flap failure). Readmission due to complications after discharge occurred in 14 (14%), while 37 (38%) developed mild complications not requiring readmission. The results were comparable to NMBRA, although the rates of autologous flap reconstructions were significantly higher than in this study (63% vs. 26%).
As a result of the establishment of an oncoplastic breast surgical service at Landspítali, the rates of immediate breast reconstruction have increased significantly (from 5% to 31%). The complication rates are low and similar to NMBRA. Inngangur: Möguleikar íslenskra brjóstakrabbameinssjúklinga til að gangast undir tafarlausa brjóstauppbyggingu hafa aukist verulega á undanförnum árum, einkum frá lokum árs 2007. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tíðni og snemmkomna fylgikvilla tafarlausra brjóstauppbygginga á Landspítala á árunum 2008-2010 og bera niðurstöðurnar saman við einu birtu rannsókn á þessu efni sem nær til heillar þjóðar og er frá Bretlandi (NMBRA).
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn þýðisrannsókn á öllum konum sem gengust undir tafarlausa brjóstauppbyggingu á Landspítala á árunum 2008-2010.
Niðurstöður: Heildarfjöldi brjóstnáma á tímabilinu var 319 en brjóstauppbyggingar voru 157 og af þeim voru 98 (62%) tafarlausar. Tafarlausar uppbyggingar voru því gerðar hjá 31% allra sem gengust undir brjóstnám en 55% hjá 50 ára og yngri. Til samanburðar var heildarhlutfallið 5% á árunum 2000-2005. Meðalaldur kvenna sem gengust undir tafarlausa uppbyggingu á rannsóknartímabilinu var 49 ár (29-69). Tafarlausar vöðvaflipauppbyggingar voru 25 (26%) en aðrar uppbyggingar voru gerðar með ígræði. Fylgikvillar í legu í kjölfar aðgerðar urðu eftir 12 (12%) tafarlausar uppbyggingar, þar af þurftu 5 sjúklingar enduraðgerð (þrír vegna blæðinga, einn vegna húðdreps og annar vegna yfirvofandi vöðvaflipadreps). Þörf var á endurinnlögn eftir útskrift í 14 (14%) tilfellum. Eftir útskrift urðu vægir fylgikvillar sem ekki kröfðust endurinnlagnar í 37 (38%) tilfellum. Almennt voru fylgikvillar sambærilegir og í NMBRA en flipauppbyggingar voru mun algengari í þeirri rannsókn (63% á móti 26%).
Ályktun: Veruleg aukning hefur orðið á tafarlausum brjóstauppbyggingum á Landspítala (frá 5% í 31%). Almennt eru þessar aðgerðir áhættulitlar og tíðni fylgikvilla svipuð og í NMBRA. |
| Description: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Allur texti - Full text |
| Additional Links: | http://www.laeknabladid.is |
| Appears in Collections: | Icelandic Journal Articles (Peer Reviewed)
|
| Files in This Item: |
| File |
Description |
Size |
Format |
View/Open |
| L2012-09-459-F1.pdf | | 208Kb | Adobe PDF |  View/Open |
|
All Items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.