Search:
Browse by
Collection All
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
Listed communities
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet

Hirsla - Landspítali University Hospital > Journal Editorials (Ritstjórnargreinar) > Icelandic Journal Editorials > Fárveikir sjúklingar með inflúensu A (H1N1)v 2009 og skjót birting greina hjá Læknablaðinu [ritstjórnargrein]

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/2336/94157
    Del.icio.us     LinkedIn     Citeulike     Connotea     Facebook     Stumble it!



Title: Fárveikir sjúklingar með inflúensu A (H1N1)v 2009 og skjót birting greina hjá Læknablaðinu [ritstjórnargrein]
Other titles: Critically ill patients with influenza A H1A1v 2009 and rapid publication in the Icelandic Medical Journal [editorial]
Authors: Gunnar Guðmundsson
Citation: Læknablaðið 2010, 96(2):79
Issue date: 1-Feb-2010
Abstract: Það hefur ekki farið fram hjá neinum að á seinni hluta ársins 2009 gekk faraldur inflúensu A (H1N1)v 2009 yfir Ísland og talið er að tugþúsundir manna hafi veikst. Fram fór fjöldabólusetning og tilfellum fækkaði mikið. Búist er við að faraldurinn geti farið aftur af stað á vormánuðum 2010 en verði mun vægari en síðasta hluta árs 2009 vegna fjölda bólusetninga sem framkvæmdar hafa verið. Síðastliðið haust veiktust nokkrir einstaklingar alvarlega af inflúensu og þörfnuðust innlagnar á gjörgæslu og sumir öndunarvélameðferðar. Gísli H. Sigurðsson og félagar segja frá þessum sjúklingum í grein í þessu tölublaði Læknablaðsins sem nefnist: Gjörgæslusjúklingar með inflúensu (H1N1) á Íslandi 2009.1 Þetta voru 16 sjúklingar og var meðalaldur þeirra 48 ár. Hluti hópsins var ekki með neina alvarlega undirliggjandi sjúkdóma en 13 einstaklingar reyktu, voru of þungir eða höfðu háþrýsting. Tólf af sjúklingunum voru lagðir í öndunarvél og tveir fóru síðar í hjarta- og lungnavél. Enginn sjúklinganna lést á gjörgæslu en einn aldraður fjölveikur maður lést á gjörgæslu. Höfundar álykta að tíðni alvarlegra sjúkdómseinkenna á Íslandi sé há og einkennist af alvarlegri öndunarbilun sem láti ekki alltaf undan hefðbundinni öndunarvélameðferð. Ljóst er að starfsfólk gjörgæsludeild vann mikil afrek með því að koma öllum þessum sjúklingum í gegnum þetta erfiða sjúkdómsferli á þessum stutta tíma. Þessar niðurstöður eru að sumu leyti svipaðar og þær sem sagt hefur verið frá í öðrum löndum.2-4 Höfundar bæta einnig við með grein sinni nýjum og mikilvægum upplýsingum um sjúkdómsgang og meðferð bráðveikra sjúklinga með inflúensu A (H1N1)v 2009. Eins og Gísli og félagar benda á er ekki ljóst af hverju tíðni alvarlegra einkenna er hærri á Íslandi en í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Kanada miðað við höfðatölu. Hugsanlega skýringu telja þeir geta verið að um sé að ræða hlutfallslega stærri faraldur, en erfðafræðilegir þættir gætu líka skipt máli. Þetta gæti verið fróðlegt að rannsaka nánar.
Description: Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)
Additional Links: http://www.laeknabladid.is
Appears in collections:Icelandic Journal Editorials

Files in this item:
File Description Size Format View/Open
L2010-02-96-R1.pdfAllur texti - Full text 75KbAdobe PDFThumbnail
View/Open

Related articles on PubMed
bullet
[Intensive care patients with influenza A (H1N1) infection in Iceland 2009]
Sigurdsson GH, Möller AD, Kristinsson B, Gudlaugsson O, Kárason S, Sigurdsson SE, Kristjánsson M, Sigvaldason K
2010 Feb
bullet
bullet
bullet
bullet
Critically Ill patients with 2009 influenza A(H1N1) in Mexico.
Domínguez-Cherit G, Lapinsky SE, Macias AE, Pinto R, Espinosa-Perez L, de la Torre A, Poblano-Morales M, Baltazar-Torres JA, Bautista E, Martinez A, Martinez MA, Rivero E, Valdez R, Ruiz-Palacios G, Hernández M, Stewart TE, Fowler RA
2009 Nov 4
See all 112 articles

All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.

 

OR Logo Powered by Open Repository
Valid XHTML 1.0!