| Title: | Forvarnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum á tímum gagnreyndrar læknisfræði [ritstjórnargrein] |
| Other titles: | Preventive cardiology in an era of evidence based medicine [editorial] |
| Authors: | Guðmundur Þorgeirsson |
| Citation: | Læknablaðið 2010, 96(2):81 |
| Issue date: | 1-Feb-2010 |
| Abstract: | Það hefur lengi verið haft fyrir satt að betra sé heilt en vel gróið og enginn efast um stórkostlegan ávinning af því að koma í veg fyrir sjúkdóma eins og barnaveiki, bólusótt eða mænusótt sem lögðu heil samfélög í rúst áður en bóluefni fundust. Virðist augljóst að æskilegra sé að forðast sjúkdóm en treysta á lækningu með tilheyrandi þjáningu, áhættu og kostnaði. Engu að síður er það rökrétt krafa að forvarnarúrræði lúti sönnunarkröfum gagnreyndrar læknisfræði rétt eins og meðferðarúrræði. Efasemdarmenn um forvarnir benda á að hroki og forsjárhyggja kunni að felast í því að þrýsta á heilbrigt fólk að breyta lífsháttum sínum í von um að með því minnki líkur á sjúkdómum í framtíðinni. Forvarnastarfið geti snúist upp í andhverfu sína, valdið tilefnislausum áhyggjum og vanlíðan, breytt heilbrigðum einstaklingi í sjúkling.1 Loks er bent á að ekki sé heppilegt að fylla heilsugæslustöðvar af heilbrigðu fólki sem komist fram fyrir þá veiku í biðröð heilsugæslunnar.
Allar þessar ábendingar ber að taka alvarlega en í reynd eru álitamálin í forvarnastarfi hliðstæð þeim sem við er að fást í meðferð sjúkra. Það þarf að forgangsraða, vega ávinning á móti áhættu og kostnaði og það má ekki setja líf einstaklinga eða samfélags á annan endann. Og jafnvel árangursríkt forvarnastarf leysir okkur ekki undan þeim skyldum sem við höfum við sjúkt fólk. |
| Description: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) |
| Additional Links: | http://www.laeknabladid.is |
| Appears in collections: | Icelandic Journal Editorials
|
| Files in this item: |
| File |
Description |
Size |
Format |
View/Open |
| L2010-02-96-R2.pdf | Allur texti - Full text | 63Kb | Adobe PDF |  View/Open |
|
All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.