Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Þorkell JóhannessonIssue Date
1989-03-15
Metadata
Show full item recordCitation
læknablaðið 1989, 75(3):101-16Abstract
Tvennt skipti mestu máli fyrir þær miklu framfarir, er urðu í skurðlækningum á síðari hluta 19. aldar. Var það annars vegar tilkoma svæfinga og hins vegar upphaf smitvarnar (antisepsis) fyrir tilstilli sótthreinsiefna. Smiteyðing (disinfektion) með sótthreinsiefnum skipti hér og máli. Við svæfingum var víðast tekið strax af mikilli hrifningu, en smitvörn og smiteyðing áttu harla erfitt uppdráttar í fyrstu og var treglega við þeim tekið lengi vel. Ástæða þessa var einkum sú, að þekking lækna á bakteríum eða öðrum sýklum var gersamlega í molum fram á 9. tug síðustu aldar. Var því lítil von til þess, að læknar hefðu almennt skilning á eða hugboð um gildi smitvarnar og smiteyðingar við skurðaðgerðir fyrr en um eða eftir 1890. Þrátt fyrir viðamikla þekkingu á bakteríufræði, er varð læknum almenn þegar á fyrri hluta 20. aldar, gætti þó enn á þeim árum sams konar tregðu, og stundum næsta furðulegrar tregðu, til þess að skynja gildi sýklalyfja við lækningar. Hér mun fyrst verða reynt að rekja mjög stuttlega upphaf svæfinga og upphaf vísindalegrar bakteríufræði. Er það gert til þess að varpa fyllra ljósi á þau meginatriði, sem hér er fjallað um. Þá verður leitast við að rekja upphaf smitvarnar og smiteyðingar með sótthreinsiefnum svo og upphaf sýklalyfja.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.laeknabladid.isCollections