Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
1988-08-15
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1988, 74(6):251-4Abstract
Streptococcus pneumoniae er algengasta orsök lungnabólgu af völdum baktería og veldur oft heilahimnubólgu og eyrnabólgu meðal barna. í nýlegri rannsókn á orsökum lungnabólgu, sem gerð var á Landspítalanum, greindist 91 tilfelli á einu ári og reyndust 36% vera af völdum pneumokokka (1). Frá 15 til 30% lungnabólgutilfella fylgir blóðsýking og í þeim hópi er dánartíðni talin 20-40% (1, 2). Pneumokokkalungnabólga her jar á folk sem virðist að öðru leyti heilbrigt og á eldra folk og sjúklinga með ýmsa langvinna sjúkdóma, svo sem lungnasjúkdóma, hjartabilun, sykursýki, nýrnabilun, skorpulifur, illkynja sjúkdóma og vanhæft milta. Dánartíðni þessara hópa hefur verið há þrátt fyrir nútíma lyfja- og gjörgæslumeðferð. Áhugi manna hefur því beinst að rannsóknum á bóluefni gegn pneumokokkum en vörn gegn pneumokokkasýkingum er fyrst og fremst talih byggja á opsónínum í sermi, komplímenti og mótefnum, sem undirbúa bakteríurnar fyrir át. í dag er mælt með notkun bóluefnis hjá þeim sem eru í mestri hættu á að sýkjast (3), þótt umdeilt sé hvort bóluefnið veiti þá vörn, sem ætlast er til hjá áhættuhópum. í þessari grein verður fjallað um þetta bóluefni, sögu þess og gerð, mótefnasvörun, aukaverkanir og gagnsemi þess hjá heilbrigðum og sjúkum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.laeknabladid.isCollections