Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
2004-12-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
Bullying, work organization and employee well-beingCitation
Læknablaðið 2004, 90(12):847-51Abstract
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna líðan, vinnuumhverfi og heilsufar starfsmanna í útibúum banka og sparisjóða með hliðsjón af því hvort þeir hefðu orðið fyrir einelti í starfi. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti sem byggist á Norræna spurningalistanum um sálfélagslega þætti í vinnu (General Nordic Questionnaire for Psychological and Social Factors at Work) var lagður fyrir alla starfsmenn vorið 2002, samtals 1847 manns. Útreikningarnir voru gerðir með SPSS tölfræðiforritinu. Niðurstöður: Alls svöruðu 1475 starfsmenn spurningalistanum, svarhlutfallið var 80%. Konur voru 86% (n=1192) svarenda. Um 15% starfsmanna (n=209) höfðu orðið fyrir ýmiss konar áreitni í starfi, meiri hluti þeirra, 8% (n=110), hafði orðið fyrir einelti. Þolendur eineltis voru líklegri en aðrir til að búa við slæmt sálfélagslegt vinnufyrirkomulag og höfðu síður upplifað jákvætt samband á milli starfsmanna og stjórnenda. Lítil tengsl voru á milli eineltis og þess að hafa leitað læknis vegna tiltekinna heilsufarsþátta. Þolendur voru líklegri en aðrir til að hafa fundið fyrir mikilli streitu nýlega (p=0,025), vera andlega úrvinda eftir vinnudaginn (p=0,013), hafa oft átt við svefnvandamál að stríða (p=0,001), búa við slæma andleg heilsu (p<0,0001) og vera óánægðir í starfi (p<0,0001). Ályktun: Vegna tengsla sem í ljós komu á milli vinnufyrirkomulags og eineltis er mikilvægt að stjórnendur kunni vel til samskipta og þekki áhættuþætti í sálfélagslegu vinnuumhverfi starfsmanna. Þar sem þolendur eineltis eru ósáttari með starf sitt en aðrir má ætla að þeir hætti frekar störfum ef þeir veikjast og tengi veikindin vinnu sinni. Því er mikilvægt rannsóknarefni að skoða algengi eineltis á meðal þeirra sem þiggja bætur hjá Tryggingastofnun ríkisins.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections
Related articles
- Psychosocial work conditions associated with sickness absence among hospital employees.
- Authors: Suadicani P, Olesen K, Bonde JP, Gyntelberg F
- Issue date: 2014 Oct
- Workplace bullying in NHS community trust: staff questionnaire survey.
- Authors: Quine L
- Issue date: 1999 Jan 23
- [The eye of technology and the well being of women and men in Icelandic work places].
- Authors: Rafnsdóttir GL, Tómasson K, Guomundsdóttir ML
- Issue date: 2005 Nov
- Psychosocial factors and health status of employees at the Poznan University of Medical Sciences.
- Authors: Ziemska B, Klimberg A, Marcinkowski JT
- Issue date: 2013
- Workplace bullying and sickness absence in hospital staff.
- Authors: Kivimäki M, Elovainio M, Vahtera J
- Issue date: 2000 Oct