Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Hildur HarðardóttirIssue Date
2002-04
Metadata
Show full item recordCitation
Ljósmæðrablaðið 2002, 80(1):23-34Abstract
Undanfarinn áratug hefur algengi sykursýki aukist, einkum svonefndrar fullorðinssykursýki eða tegundar 2. Þó svo þessi tegund sykursýki hafi verið kennd við elli þá þarf viðkomandi ekki að vera aldraður til að fá sjúkdóminn, heldur er í raun átt við sykursýki sem oftast kemur fram eftir að einstaklingurinn er orðinn fullorðinn. Á Íslandi hefur algengi sykursýki verið lægra en á hinum Norðurlöndunum. Algengi sykursýki af tegund 1 var 0,14% og tegund 2 0,536%, árið 1989 (áætlað út frá sölutölum sykursýkilyfja) (1). Á árinu 1999 var algengi sykursýki af tegund 1 0,19%, tegund 2 0,9% og ef taldir eru með allir þeir sem hafa dulinn sjúkdóm þá er tíðnin 1,5% (2,3). Aukninguna má merkja á aukinni notkun sykursýkílyfja en á árunum 1989-1999 jókst notkun insulins og insúlínvirkra lyfja um 50% og notkun sykursýkílyfja í töfluformi um 119% (4). Þessi þróun er talin tengjast hækkandi þyngdarstuðli (body mass index; BMI; kg/m2) þjóðarinnar. Eftir því sem þyngdarstuðullinn hækkar þá aukast líkur á sykursýki af tegund 2. Á sama hátt tengist sykursýki á meðgöngu ofþyngd. Sykursýki af tegund 1 fylgja margvísleg vandamál á meðgöngu, með hærri burðarmálsdauða og margvíslegum nýburavandamálum (5). Sykursýki af tegund 2 og meðgöngusykursýki eru vægari sjúkdómar og þar er algengasta nýburavandamálið ofvöxtur fósturs (macrosomia) og afleiðingar þess.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.ljosmodir.isCollections