Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Guðjón AxelssonIssue Date
2002
Metadata
Show full item recordOther Titles
The depth of the lingual fossa in the permanent maxillary incisors in IcelandersCitation
Tannlæknablaðið 2002, 20(1):5-11Abstract
Notaðar voru gipsafsteypur af tönnum 1010 barna og unglinga frá Húsavík og Norður- og Suður- Þingeyjarsýslum sem aflað var 1973-75. Mesta dýpt grófar á innfleti framtanna í efri gómi var mæld með tveim sérhönnuðum mælitækjum (5). Mælt var hornrétt á innflöt tanna með 0,05 mm nákvæmni. Þegar innflötur var kúptur var dýpt grófar skráð 0,0 mm. Þar sem marktækur munur milli hliða fannst hvorki hjá körlum né konum voru mælingar úr hægri hlið notaðar. Tölur úr vinstri hlið voru þó notaðar ef samsvarandi tönn vantaði hægra megin eða reyndist ónothæf. Meðaldýpt grófar á innfleti miðframtannar í efri gómi var 0,58 mm og 0,33 mm á hliðarframtönn. Kynjamunur var hvorki marktækur fyrir miðframtönn né hliðarframtönn. Breytistuðull var hærri hjá körlum en konum og hærri á hliðarframtönn heldur en miðframtönn. Meðaldýpt grófar á innfleti miðframtannar í efri gómi hjá Íslendingum var ein sú mesta sem mælst hefur hjá þjóðum af hvíta kynstofninum. Þar sem tennur núlifandi Íslendinga voru stærri en tennur fjölmargra Evrópuþjóða (31) gæti jákvæð fylgni milli dýptar grófar og breiddar miðframtannar verið ástæða þessarar miklu meðaldýptar.The material consisted of dental stone casts of the dentitions of 1010 children, aged 6-17 years, from two rural and one urban population, North-east Iceland. The maximum depth of the lingual fossa in the maxillary permanent incisors was measured at right angles to the lingual surface by two modified dial gauges, having fixed lateral shoulders and a movable central measuring rod. Readings were rounded off to the nearest twentieth of a millimeter. As significant laterality was not observed, right-side measurements were used. Left-side measurements were used only if the antimer was missing or could not be measured. The mean depth of the lingual fossa in the central incisor was 0.58 mm but 0.33 mm in the lateral incisor. No sexual dimorphism was found. The variability was higher for males than females and, in accordance with the field concept, higher for the lateral than for the central incisor. The mean depth of the lingual fossa in the central incisor in Icelanders is one of the highest recorded among Caucasoid populations. As the mesio-distal diameter of the teeth of Icelanders proved to be larger than in Europeans generally (31), the reason for the unexpected depth of the lingual fossa in the central incisor is conceivably the positive correlation between the depth of the lingual fossa and the mesio-distal diameter of the central incisor.
Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.tannsi.isCollections