Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Marianne Elisabeth KlinkeIssue Date
2006
Metadata
Show full item recordCitation
Öldrun 2006, 24(1):6-13Abstract
Þegar ég hóf störf á taugalækningadeild, sem ungur og óreyndur hjúkrunarfræðingur, kveið ég því að þurfa að taka á móti og sinna sjúklingum með Parkinsonsveiki. Ég áleit úrræði hjúkrunar þeim til handa heldur gagnslaus. Umönnun þessara sjúklinga var oft mjög tímafrek og ég var hálf ráðalaus yfir hvað ég ætti að gera fyrir þá. Eftir að ég öðlaðist meiri þekkingu um Parkinsonsveiki og hún er orðin eitt af mínum aðal áhugamálum innan taugahjúkrunar, geri ég mér grein fyrir að kvíði minn byggðist á þekkingar- og úrræðaleysi gagnvart sjúkdómnum. Sem hjúkrunarfræðingur vill maður hjálpa sjúklingunum, en ef staðið er uppi ráðalaus gagnvart hinum sjúka verður hjúkrunin manni erfið. Með þá þekkingu sem ég hef öðlast um Parkinsonssjúklinga og hjúkrunarþarfir þeirra, leyfi ég mér að lýsa hjúkrun þeirra sem mjög áhugaverðri, en jafnframt mjög flókinni og krefjandi. Hvað lyfjameðferðina varðar er varla hægt að hugsa sér nokkuð flóknara en að stilla inn rétt lyf og lyfjaskammta til að halda sjúkdómnum og einkennum hans í skefjum. Hið sama má segja um hjúkrunina. Ef hægt er að veita Parkinsonssjúklingi góða hjúkrun er hægt að hjúkra nánast hvaða sjúklingi sem er. Markmiðið með þessari grein er að koma til skila hversu fjölbreytt verkefni eru við hjúkrun sjúklinga með Parkinsonsveiki og mun ég lýsa helstu atriðum sem hafa þarf í hugaDescription
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenCollections