Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Hallgrímur MagnússonIssue Date
2004
Metadata
Show full item recordCitation
Öldrun 2004, 22(1):8-11Abstract
Margt hefur verið rætt og ritað um þunglyndi á undanförnum árum. Efnið er orðið nokkuð vinsælt í fjölmiðlum, fólk kemur í sjónvarpið og segir lífsreynslusögur sínar og blöð og tímarit fjalla oft um þetta efni. Á veggjum heilbrigðisstofnana má sjá spjöld þar sem athygli gesta og gangandi er vakin á sjúkdómnum. Á þessum spjöldum eru gjarnan litmyndir af fólki með mikinn angistarsvip eða hamingjusvip og áletranirnar með stríðsfréttaletri. Í jólabókaflóði undanfarinna ára má finna bækur sem að meira eða minna leyti eru helgaðar þessum sjúkdómi. Það er því ekki að undra þótt hinn almenni borgari sé orðinn all vel heima í greiningu og eðli þessa sjúkdóms og er það vel. Við þessa miklu umræðu virðist hugtakið „þunglyndi“ vera orðið eilítið óskýrara en það var og orðið virðist að einhverju leyti vera að fá viðbótarmerkingu sem er nær því sem hingað til hefur verið kallað „lífsleiði“ og núorðið heyrist orðið „þunglyndi“ einstaka sinnum notað sem lýsingarorð og nær þá yfir eitthvað sem er leiðinlegt eða óheppilegt. Undanfarin 10-15 ár hefur sjúkdómurinn verið rannsakaður í vaxandi mæli. Fjöldi útgefinna greina um þunglyndi aldraðra á ári hefur sexfaldast á undanförnum 20 árum, á árinu 1984 voru þær rúmlega 50, en árið 2002 voru yfir 300 greinar um þunglyndi aldraðra birtar. Það er þess vegna hægt að slá því föstu að þekking á þunglyndi aldraðs fólks hefur aukist mikið á síðustu árum. Í þessari grein verður reynt að taka saman helstu atriði um þunglyndi aldraðra sem sannprófuð hafa verið með rannsóknum á sjúkdómnum. Hér er um að ræða niðurstöður rannsókna sem að bestu manna yfirsýn eru mjög áreiðanlegar, þ. e. a. s. rannsóknaraðferðin stenst ströngustu kröfur og niðurstöður staðfestar af fleiri en einni slíkri rannsókn.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenCollections