Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Ingibjörg S. BenediktsdóttirIssue Date
2006
Metadata
Show full item recordCitation
Tannlæknablaðið 2006, 24(1):47-8Abstract
Ritstjóri hefur á undanförnum árum séð nokkur tilfelli af gríðarlegri tannátu og tannholdsbólgum hjá sjúklingum sem hafa lent útaf hinum gullna meðalvegi í lífinu. Oft er um að ræða unga einstaklinga sem ekki hafa verið lengi í neyslu en koma til okkar að lokinni afeitrunarmeðferð afskaplega illa farin tannlega séð. Eftir samræður við nokkur starfssystkin, var ljóst að fleiri höfðu orðið varir við þetta vandamál. Það er eins og fólk geti verið í áfengisóreglu lengi án þess að það bitni svo mikið á tönnunum en það sem við í daglegu tali köllum „dóp“ virðist fara afskaplega illa með tennurnar. Einstaklingarnir sjálfir segja okkur að þetta og hitt dópið éti tennurnar upp að innan og miklar sögur fara af þessu í dópheiminum. Lítið hefur verið fjallað um þessi mál hér á Íslandi og engin svör fengust frá Lýðheilsustofnun þegar spurt var hvort þeir kynnu einhverjar skýringar á þessum vanda. Hins vegar klikka PubMed, Google og Wikipedia ekki. Ekki þurfti að leita lengi til að finna upplýsingar sem mér sem almennum tannlækni voru algjörlega huldar. Hér á eftir kemur hluti af því sem til er á netinu um þessi mál. Sumt af þessu er væntanlega ýkt en reynt var að vinsa úr það sem líklegast þótti að væri rétt og satt. Auðvitað er helsta ástæða þess að eiturlyfjaneytendur eru með svo slæmt ástand í munnholi einfalda sú að lífstíll þessa fólks er þannig að almenn munnhirða er ekki ofarlega á forgangslistanum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.tannsi.is