Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Börkur ThoroddsenIssue Date
2006
Metadata
Show full item recordCitation
Tannlæknablaðið 2006, 24(1):50, 52-6Abstract
Því er haldið fram, að heilbrigðisþjónusta á Íslandi sé sú besta í heimi. Í lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 97/1990 má lesa í málsgrein 1.1 „Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tíma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heilbrigði.” Í grein 1.3 sömu laga segir: ,,Ráðherra heilbrigðis og tryggingamála sér um, að heilbrigðisþjónusta sé eins góð og þekking og reynsla leyfir”.1 Í lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 stendur í 3. málsgrein „Sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita” og „Sjúklingur á rétt á þjónustu sem miðast við ástand hans og horfur á hverjum tíma og bestu þekkingu sem völ er á”.2 Svona yfirlýsingar, sem algengar eru í löndum EU/EES og eru jafnvel bundnar í stjórnarskrám, verða að teljast stefnuyfirlýsingar sem erfitt getur verið að standa við.3 Íslendingar eiga kost á tannlæknisþjónustu, sem ekki er síðri en annarsstaðar á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum. Menntun tannlækna og gæði þjónustunar á Íslandi er sambærilegt við það sem gerist í þessum löndum. Munur er á milli landa í kostnaðarhlutdeild tannlæknisþjónustunnar. Sá hluti kostnaðar sem notendur greiða beint úr eigin vasa er hærri á Íslandi en annarsstaðar á Norðurlöndum og einnig er hlutdeildin hærri á Íslandi en í USA. Á Íslandi er þjónustan veitt hjá sjálfstætt starfandi tannlæknum eingöngu. Tannlækningastofur eru hvorki reknar af ríki né sveitarfélögum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.tannsi.is