Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Magnús JóhannssonIssue Date
2002-04-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
Doctors and drugs [editorial]Citation
Læknablaðið 2002, 88 (4):275Abstract
Læknar eru nær einráðir um það hvort lyf eru notuð í hverju sjúkdómstilviki fyrir sig og þá hvaða lyf eru notuð. Þessu fylgir mikil ábyrgð gagnvart sjúklingnum sem á rétt á góðri meðferð og samfélaginu sem þarf oft að greiða hluta kostnaðarins. Til þess að geta sinnt þessu hlutverki sem best er mikilvægt að læknar hafi mjög greiðan aðgang að vönduðum og hlutlausum upplýsingum um lyf. Slíkar upplýsingar veita lyfjaframleiðendur því miður ekki heldur eru þær oft villandi og stundum beinlínis rangar. Sem dæmi um þetta má nefna að Lyfjastofnun, en lyfjaauglýsingar heyra undir hana, bárust um 50 kvartanir vegna lyfjaauglýsinga eða kynninga á síðasta ári. Flestar þessara kvartana eru frá samkeppnisaðilum, sumar frá læknum og aðrar verða til innan Lyfjastofnunar við lestur auglýsinga. Í langflestum tilvikum leiðir athugun til þess að gerðar eru athugasemdir við viðkomandi auglýsingu, hún bönnuð eða auglýsanda jafnvel gert að senda frá sér leiðréttingu. Tekið skal fram að lyfjaframleiðendur eru mjög misheiðarlegir að þessu leyti. Upplýsingar frá lyfjaframleiðendum á öðru formi, til dæmis í fréttabréfum, bæklingum og á netinu eru ekki betri. Í allar þessar auglýsingar og kynningar er eytt ótrúlega miklum fjármunum og samkvæmt opinberum tölum er um að ræða um 20% af veltu fyrirtækjanna að meðaltali, en kunnugir segja að ef allt er talið sé þetta hlutfall mun hærra hjá sumum fyrirtækjum, eða á bilinu 30-40%. Opinberir aðilar, sem hér á landi eru einkum Lyfjastofnun og Landlæknisembættið, geta auðvitað seint keppt við þetta mikla fjármagn en eru af veikum mætti að stunda ýmiss konar upplýsingagjöf og leiðbeiningar til lækna.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.is/2002/4/ritstjornargreinar/nr/84/Collections
Related articles
- Editorial: Those "ingredients most used by doctors".
- Authors: Ingelfinger FJ
- Issue date: 1976 Sep 9
- [The communication between doctors and the pharmaceutical firms [Editorial].].
- Authors: Sveinsson S
- Issue date: 2001 Dec
- [Medical abuse and abuse of doctors [Editorial].].
- Authors: Axelsson ER
- Issue date: 2002 Sep
- [Unhappy doctors [Editorial].].
- Authors: Guðmundsson O
- Issue date: 2003 Feb