Líffæraflutningar : miklvægur þáttur í íslenskri heilbrigðisþjónustu [ritstjórnargrein]
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
2000-09-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
Organ Transplantation. An important element of the Icelandic Health Service [editorial]Citation
Læknablaðið 2000, 86(9):553-54Abstract
Þetta hefti Læknablaðsins er að mestu leyti helgað líffæraflutningum. Á árlegu fræðsluþingi Læknafélags Íslands í janúar síðastliðnum var haldið málþing um líffæraflutninga. Líffæraflutningar, sem eru vaxandi þáttur í heilbrigðisþjónustunni, hafa hlotið fremur litla umfjöllun á síðum Læknablaðsins var því ákveðið að birta í blaðinu greinar sem byggja á erindum sem voru flutt á málþinginu (1-6). Til viðbótar var ákveðið að hafa umfjöllun um beinmergsígræðslur (7). Rúm 40 ár eru síðan tilraunir með flutning líffæra úr einum einstaklingi til annars fóru að skila árangri. Framan af voru það einkum nýraígræðslur sem heppnuðust vel en árangur af ígræðslu annarra líffæra var slakur og margir sjúklingar létust skömmu eftir aðgerð. Síðan hafa orðið stöðugar framfarir og líffæraflutningar eru nú viðurkennd meðferð við sjúkdómum á lokastigi í hjarta, lifur, lungum og nýrum og við sykursýki (8). Garnaígræðslur hafa verið á tilraunastigi en árangur þeirra hefur batnað mikið á undanförnum árum. Þá hafa beinmergsflutningar áunnið sér sess við meðferð ýmissa blóðsjúkdóma. Beinmergsflutningar hafa nokkra sérstöðu í samanburði við aðra líffæraflutninga (solid-organ transplantation) bæði hvað varðar öflun vefja til ígræðslu og vandamál þegans. Það er einkum tvennt sem hefur gert líffæraígræðslur að raunhæfum möguleika við meðferð sjúkdóma. Í fyrsta lagi eru það framfarir í ónæmisbælandi lyfjameðferð og þá sérstaklega tilkoma cýklósporíns um 1980. Í öðru lagi hafa framfarir í skurðtækni, gjörgæslu og meðferð sýkinga bætt horfur líffæraþega.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections
Related articles
- [The annual meeting of the icelandic surgical society and the icelandic society of anestiologists [Editorial].].
- Authors: Petersen H
- Issue date: 2000 Apr
- [Access to transplantation organs in Iceland.].
- Authors: Asmundsson P
- Issue date: 2000 Sep
- [Height and weight of Icelandic children 6-20 years of age.].
- Authors: Dagbjartsson A, Thorsson AV, Palsson GI, Arnorsson VH
- Issue date: 2000 Jul
- [Height and weight of Icelandic children 6-20 years of age.].
- Authors: Dagbjartsson A, Thornórsson AV, Pálsson GI, Arnórsson VH
- Issue date: 2000 Jul-Aug
- Attitudes of Icelandic young people toward sexual and reproductive health services.
- Authors: Bender SS
- Issue date: 1999 Nov-Dec