Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Útgáfudagur
2014-02
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 2014/100(2):90-96Útdráttur
Ginklofi (Neonatal tetanus) var í upphafi 19. aldar mikill heilbrigðisvandi í Vestmannaeyjum. Allt að 60-70% nýfæddra barna dóu á fyrstu tveimur vikunum og dönsk heilbrigðisyfirvöld stóðu nær ráðþrota gagnvart þessum dularfulla sjúkdómi. Árið 1847 var ungur danskur læknir, Peter Anton Schleisner (1818-1900), sendur til Vestmannaeyja til að rannsaka ástandið. Hann kom upp fæðingarstofu, leiðbeindi um hreinlæti og hvatti til brjóstagjafar og annarra breytinga í mataræði. Engin lækning var þekkt við sjúkdómnum svo að Schleisner gat aðeins gripið til fyrirbyggjandi úrræða. Hann bar kopaiva-smyrsl á naflastúfinn við fæðingu og notaði önnur þrautreynd meðul eins og ópíum-tinktúru með saffrani og kvikasilfurssmyrsl ef um sýkingu virtist að ræða. Þegar Schleisner hélt til Danmerkur ári síðar hafði dánartíðni nýbura lækkað um helming. Nýburadauðinn í Vestmannaeyjum hélst síðan jafnlágur út alla 19. öldina. Fólk hafði þá trú að það væri að þakka „naflaolíunni“ sem Schleisner tók í notkun. Hluta af skýringunni má einnig rekja til bættra lífskjara, nokkurrar fjölgunar velstæðra ófrískra kvenna, aukinna þéttbýlisáhrifa, breytinga á lífsháttum og aðgerða í hreinlætismálum. Í samanburði við aðstæður á skosku eynni St. Kildu, þar sem aðstæður voru hinar sömu og ástandið breyttist ekki fyrr en rétt fyrir aldamótin 1900, er ljóst að aðgerðir Schleisners höfðu mikla þýðingu. Sumarið 1847 sigldi hinn 29 ára gamli danski læknir Peter Anton Schleisner (1818-1900)1 (mynd 1) til Vestmannaeyja við suðurströnd Íslands. Hann hafði fengið ítarleg fyrirmæli frá dönskum stjórnvöldum. Markmið þeirra var að berjast gegn neonatal tetanus, sem á íslensku nefnist ginklofi og var landlæg farsótt í Vestmannaeyjum. Í þessari grein er því lýst hvers vegna Schleisner var sendur í þessa för, hvað hann tók sér fyrir hendur og hvernig framlag hans var metið af samtíðarmönnum og þegar tímar liðu fram.Lu00FDsing
Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn.Vefslóð
http://laeknabladid.isRights
openAccessCollections