Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Kolbrún GunnarsdóttirReynir Tómas Geirsson
Eyjólfur Þorkelsson
Jón Þorkell Einarsson
Ragnar Freyr Ingvarsson
Sigurbjörg Bragadóttir
Issue Date
2008-06-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
Attitudes and knowledge on sexual matters among 16-year old teenagersCitation
Læknablaðið 2008, 94(6):453-60Abstract
OBJECTIVE: Sexually transmitted diseases and unplanned pregnancies are social and health issues among Icelandic teenagers and are more prevalent than in neighbouring countries. In 2001 knowledge and attitudes to sexual education, sexually transmitted disease and contraception among 16-year olds were investigated by questionnaire. Knowledge was defective. The study was repeated in 2005-2006 in a larger sample and change over five years estimated after an educational effort on sexual issues was launched by medical students (www.astradur.is). MATERIAL AND METHODS: A survey with 69 multiple choice questions was administered in conjunction with sexual education by medical students. Changes in replies to the same questions were compared between 2001 and 2005-2006 as well as before and after teaching. RESULTS: A total of 201 teenagers were in the first and 417 in the latter study. There was a wish for sexual education in schools and by outside advisers. The parental role was relatively small. Knowledge was inadequate in both, but significant improvement was seen between periods and after the educational effort (p<0.001). Misconceptions were common, such as 13% of boys believing that oral contraceptives protected against sexually transmitted disease, that herpes infection was curable by antibiotics (70% of respondents) and that modern medicine cured HIV (10% of respondents). Attitudes to sexual behavior had not changed by 2005-6 and 66% thought it normal for 14-16 year olds to have sexual intercourse, while only 8% were ready to handle the consequences. CONCLUSION: Misconception and inadequate knowledge on various key aspects of sexuality is common, not least on serious sexually transmitted diseases, which suggests a need for improved sexual education in late primary and early secondary school.Tilgangur: Kynsjúkdómar og ótímabærar þunganir hafa verið félags- og heilbrigðisvandamál meðal íslenskra unglinga og algengari á Íslandi en í nágrannalöndunum. Sumarið 2001 var gerð könnun á þekkingu og viðhorfum 16 ára unglinga til kynfræðslu, kynsjúkdóma og getnaðarvarna sem sýndi að þekkingu á kynsjúkdómasmiti og getnaðarvörnum var verulega ábótavant. Könnunin var endurtekin 2005-2006 með tvöfalt stærra úrtaki og niðurstöður rannsóknanna bornar saman til að meta breytingar í ljósi fræðsluátaks frá Ástráði, forvarnastarfi læknanema. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti með 69 fjölvalsspurningum var lagður fyrir 16 ára ungmenni á Akureyri og á Reykjavíkursvæðinu í tengslum við forvarnastarfið. Samanburður var gerður á svörum 2001 og 2005-2006, og fyrir og eftir fræðsluna. Niðurstöður: Alls tóku 201 ungmenni þátt 2001 og 417 í könnuninni 2005-2006. Flestum fannst fræðslan eiga heima í skólum og æskilegt væri að utanaðkomandi fagfólk veitti hana. Þáttur foreldra var takmarkaður. Þekkingu var ábótavant á báðum rannsóknatímabilum, en marktæk breyting til batnaðar sást, milli tímabila og eftir fræðslu (p<0,001). Meðal annars fannst að í hópi pilta í seinni könnuninni töldu 13% pilluna veita vörn gegn kynsjúkdómum, tæp 70% allra unglinganna taldi að herpessýking læknaðist með sýklalyfjum og tíundi hver að hægt væri að lækna HIV. Viðhorf til kynhegðunar höfðu lítið breyst milli tímabila og 66% töldu eðlilegt að 14-16 ára unglingar stundi kynlíf, þótt einungis 8% væru reiðubúin til að taka afleiðingunum. Ályktun: Vanþekking og misskilningur um ýmis grunnatriði kynlífs eru algeng meðal unglinga, ekki síst varðandi alvarlegustu kynsjúkdómana, sem bendir til að bæta megi kynfræðslu í grunnskólum og á fyrstu stigum framhaldsskóla.
Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections
Related articles
- Adolescent sexual behaviour, knowledge and attitudes to sexuality among school girls in Transkei, South Africa.
- Authors: Buga GA, Amoko DH, Ncayiyana DJ
- Issue date: 1996 Feb
- Adolescent sexuality and fertility in Kenya: a survey of knowledge, perceptions, and practices.
- Authors: Ajayi AA, Marangu LT, Miller J, Paxman JM
- Issue date: 1991 Jul-Aug
- Teenage sexual behaviour: attitudes towards and declared sexual activity.
- Authors: Burack R
- Issue date: 1999 Jan
- Young women's reproductive health survey.
- Authors: Lewis H
- Issue date: 1987 Aug 12
- Sex, birth control and sexually transmitted diseases: teens voice their beliefs.
- Issue date: 1996 Nov