Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Elías ÓlafssonIssue Date
1999-06-01
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1999, 85(6):507, 509Abstract
Slag eða heilaslag (stroke) er algengur sjúkdómur og ætla má að að minnsta kosti 700 íslendingar fái slag árlega og vænta má fjölgunar tilfella á næstu árum þegar elsti hluti þjóðarinnar stækkar. Slag er þriðja algengasta dánarorsökin á Vesturlöndum og algengasta orsök fötlunar fullorðinna. Langtímaumönnun á hjúkrunarheimilium er oft nauðsynleg og Bretar telja að 5% útgjalda sinna vegna heilbrigðismála tengist umönnun sjúklinga með heilaslag. Stjórnun áhættuþátta er mikilvægasta aðferðin til þess að fyrirbyggja slag, og þeir sterkustu eru: saga um skammvinna heilablóðþurrð (transient ischemic attack), hár blóðþrýstingur, gáttatif og þekkt segalind í hjarta. Frumvörn (primary prevention) er beitt hjá þeim sem aldrei hafa fengið slag og er þá meðal annars notuð blöðflögubæling eða blóðþynning þegar um þekkta segalind er að ræða. Síðvörn (secondary prevention) er fyrirbyggjandi meðferð hjá þeim sem þegar hafa fengið slag, en verulegur hluti sjúklinganna (1) fær slag í annað eða þriðja sinn. Meðferðin er sams konar og við frumvörn en auk þess er hægt að gera aðgerð á hálsslagæð (carotid endarterectomy) í völdum tilvikum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections