Iðjuþjálfun í ljósi skjólstæðingsmiðaðrar nálgunar : reynsla skjólstæðinga á endurhæfingarstofnunum
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Guðrún PálmadóttirIssue Date
2008
Metadata
Show full item recordCitation
Iðjuþjálfinn 2008, 30(1):8-18Abstract
Skjólstæðingsmiðuð nálgun er eitt af kjarnahugtökum nútímaiðjuþjálfunar. Rannsóknir á hugtakinu hafa mest snúist um skoðanir iðjuþjálfa á því hvað skjólstæðingsmiðuð nálgun standi fyrir og hvað hindri hana mest. Viðhorf skjólstæðinga hafa lítið verið rannsökuð og einnig hvernig skjólstæðingsmiðuð nálgun birtist í daglegu starfi. Tilgangur rannsóknarinnar sem hér er lýst var að fá innsýn í hvernig þjónusta iðjuþjálfa í endurhæfingu samræmist hugmyndum fræðimanna um skjólstæðingsmiðaða þjónustu. Rannsóknin var eigindleg og gögnum safnað með viðtölum við 20 fyrrverandi skjólstæðinga iðjuþjálfa á endurhæfingarstofnunum. Við greiningu var notuð sniðmátun og túlkunarfræðileg nálgun þar sem meginhugtök skjólstæðingsmiðaðrar iðjuþjálfunar voru borin saman við gögnin. Niðurstöðurnar birtust í þremur meginþemum. Það fyrsta sneri að iðjuþjálfanum, annað að umgjörð þjónustunnar og hið þriðja að samvinnu iðjuþjálfans og skjólstæðingsins. Þátttakendur voru í heildina ánægðir með þjónustu iðjuþjálfa og fannst þeir virða skjólstæðinga sína, vera umhyggjusamir og alia jafna leggja sig fram við að vinna starf sitt af fagmennsku. Einstaka þátttakendur hefðu samt kosið öflugri upplýsingagjöf og einstaklingsmiðaðri þjónustu. Stjórnsýsla stofnunar og skipulag og hefðir iðjuþjálfunardeilda sköpuðu ákveðnar hindranir gegn skjólstæðings-miðuðu starfi og möguleikum iðjuþjálfa til að mæta þörfum allra skjólstæðinga. Flestir viðmælendur upplifðu að samskipti þeirra við iðjuþjálfana hefðu verið á jafningjaplani þótt ákvörðun um umfang og innihald þjónustunnar væri oftar en ekki í höndum iðjuþjálfa. Mismunandi var að hvaða marki þátttakendur tóku þátt í að tilgreina iðjuvanda, setja markmið og meta árangur. Það er mikilvægt að iðjuþjálfar átti sig á margbreytileika skjólstæðingsmiðaðrar iðjuþjálfunar og að hún stendur og fellur fyrst og fremst með þeim sjálfum. Margir munu þurfa að ígrunda eigin viðhorf og vinnulag og fá markvissa handleiðslu við að vinna skjólstæðingsmiðað með skjólstæðingum, samstarfsfólki, stjórnsýslu og heilbrigðisyfirvöldum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.sigl.is/idjuCollections