Browsing Case of the month (Sjúkratilfelli mánaðarins) Articles in Icelandic by Authors
Now showing items 1-1 of 1
-
Karlmaður með þrota í andliti og mæði [sjúkratilfelli]Gunnarsson, Sverrir I; Hannesson, Pétur H; Gudbjartsson, Tómas; sverrirgunnarsson@gmail.com (Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur, 2010-02-01)91 árs áður hraustur karlmaður leitaði á heilsugæslu utan höfuðborgarsvæðisins vegna fjögurra daga sögu um vaxandi mæði og þrota í andliti. Hann tók engin lyf að staðaldri og hafði ekki þekkt ofnæmi. Nokkrum dögum áður hafði hann hlotið áverka á vinstri síðu við fall. Við skoðun var öndun hröð og andlit greinilega þrútið (mynd 1). Vegna gruns um ofnæmislost var manninum gefið adrenalín og bólgueyðandi sterar í æð. Honum versnaði enn frekar eftir lyfjagjöfina og var því fluttur með sjúkrabíl á Landspítala þar sem gerðar voru frekari rannsóknir, meðal annars myndrannsóknir af lungum (mynd 2). Hver er greiningin, helstu mismunagreiningar og meðferð?