Tilkoma hægra greinrofs : tengsl við hjartasjúkdóma og afdrif sjúklinga í hóprannsókn Hjartaverndar
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Inga S. ÞráinsdóttirÞórður Harðarson
Guðmundur Þorgeirsson
Ragnar Danielsen
Helgi Sigvaldason
Nikulás Sigfússon
Issue Date
1997-02-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
Newly acquired right bundle branch block. Association with heart disease and risk factors in the Reykjavik StudyCitation
Læknablaðið 1997, 83(2):85-91Abstract
Purpose: To find risk factors for the appearance of right bundle branch block (RBBB) and to assess the prognosis of people with it. Methods: Subjects were participants in the Reykjavik Study who had acquired RBBB following an examination in a previous stage in this prospective population study, carried out in five stages in 1967-1991. Cases with two matched controls were recruited for a special examination in 1992. Results: Acquired RBBB was seen in 33 men and 14 women. Multivariate analysis showed, compared to the total population, that men with RBBB more often had cardiomegaly (odds ratio=OR 1.7;confidence limit=CL 1.2-2.5) women more often took antihypertensive drugs (OR 2.5; CL 1.5-4.1) and had lower diastolic blood pressure (OR 0.97; CL 0.95-0.99). Predictive factors in people with acquired RBBB were age (men: relative risk=RR 1.08; CL 1.05-1.11, women: RR 1.09; CL 1.02-1.17) and antihypertensive medication in women (RR 3.5; CL 1.2-10.4). There was no significant difference between cases and controls regarding examination, echocardiography and mortality. Conclusion: Factors associated with the appearance of RBBB are mainly age, cardiomegaly and antihypertensive medication.Tilgangur þessarar rannsóknar er að finna forspárþætti um tilurð hægra greinrofs og meta ástand og horfur fólks sem greinist með slíka leiðslutruflun. Í hóprannsókn Hjartaverndar greindust 33 karlar með nýtt hægra greinrof miðað við fyrri áfangarannsókn og voru 22 þeirra lifandi þegar skoðun fór fram á tímabilinu júní til október 1992. Konur með nýtt hægra greinrof voru 14, þar af 12 á lífi. Fyrir hvern einstakling með nýtt hægra greinrof voru einnig rannsakaðir tveir þátttakendur á sama aldri og af sama kyni til samanburðar á sjúkdómseinkennum og niðurstöðum hjartaómunar. Að öðru leyti voru rannsóknarniðurstöður bornar saman við heildarhóp í hóprannsókn Hjartaverndar. Þátttakendur gengust undir hefðbundnar rannsóknir sem gerðar eru í hóprannsókninni auk þess sem hjartaómun var framkvæmd. Rannsóknin fór fram á tímabilinu júní til október 1992. Mæting var 85,3% meðal karla en 87,5% meðal kvenna í almennu rannsóknina en litlu minni í ómunina. Meðalaldur karla við fyrstu greiningu hægra greinrofs var 60 ár (44-72 ár) en meðalaldur kvenna 68 ár (50-78 ár). Karlar höfðu verið til rannsóknar að meðaltali í 13 ár (fimm til 22 ár) áður en greinrofið greindist en konur í átta ár (eitt til 20 ár). Við samanburð á heildargreinrofshópi við heildarhópinn í hóprannsókninni eftir aö hægra greinrof kom fram sýndi fjölþáttargreining að karlar höfðu marktækt oftar hjartastækkun samkvæmt röntgenmynd (líkindahlutfall 1,7; öryggismörk 1,2-2,5). Konur tóku marktækt oftar háþrýstingslyf (líkindahlutfall 2,5; öryggismörk 1,5-4,1), voru með lægri lágbilsþrýsting (líkindahlutfall 0,97; öryggismörk 0,95-0,99) og höfðu hærra hematókrít (líkindahlutfall 1,02; öryggismörk 1,0-1,04). Fjölþáttargreining á forspárþáttum í hópi fólks með nýtilkomið hægra greinrof, miðað við heildarhópinn, sýndi að aukinn aldur beggja kynja (karlar: áhættuhlutfall 1,08; öryggismörk = 1,05-1,11, konur: áhættuhlutfall 1,09; öryggismörk 1,02-1,17) og taka háþrýstingslyfja meðal kvenna (áhættuhlutfall 3,5; öryggismörk 1,2-10,4) hafði forspárgildi fyrir greinrofi. Ekki reyndist munur milli hópa við klíníska skoðun eða á hjartarafriti. Lítill og ómarktækur munur var á ómunarbreytum milli hópanna. Af 33 körlum með nýtt hægra greinrof létust 11 áður en skoðun fór fram eða 33,3% en tvær konur eða 14,3%. Karlar með hægra greinrof dóu fremur úr kransæðasjúkdómi en einstaklingar í samanburðarhópi (p=0,12). Við ályktum að nýtilkomið hægra greinrof sé stundum í beinum tengslum við hjartastækkun og töku blóðþrýstingslækkandi lyfja og sé þá hluti af þeim hjartabreytingum sem geta orðið vegna háþrýstings.
Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections