Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Örn ÓlafssonIssue Date
1997-01-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
What is statistics for? Few commentsCitation
Læknablaðið 1997, 83(1):35-8Abstract
Með auknum fjölda rannsóknarverkefna innan læknisfræðinnar hafa viðfangsefnin orðið æ flóknari og kallað á enn frekari notkun tölfræði. Þó að forsendur fyrir beitingu tölfræði séu óbreyttar þá eru aðrar áherslur en áður í notkun á henni, þar sem auðveldara er nú með tölfræðiforritum að gera flókna útreikninga og prófa fleiri tilgátur. Í undirbúningi rannsókna er því hætta á að minna sé lagt upp úr vali á tilgátum. Verði tilgáturnar margar sem prófaðar eru tölfræðilega í sömu rannsókn, aukast líkur á að „samband" finnist milli þátta sem ekki tekst að staðfesta síðar. Veikleikar sem kunna að vera í undirbúningi og framkvæmd rannsóknar og síðan meðhöndlun gagna verða sjaldnast bættir upp með útreikningum. Því er í þessari grein vakin athygli á og skýrð nokkur tölfræðiatriði þessu tengd, og sem að fenginni reynslu höfundar eru oft vanmetin eða misskilin. Gert er ráð fyrir að lesandinn kunni einhver skil á tölfræði. Vanti frekari skýringar, er bent á heimildaskrá (1-6).Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections