Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Helga BragadóttirSigrún Stefánsdóttir
Sólrún Áslaug Gylfadóttir
Guðný Bergþóra Tryggvadóttir
Útgáfudagur
2016-11-21
Metadata
Show full item recordCitation
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2016, 92 (4):9-18Útdráttur
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á teymisvinnu og tengsl hennar við starfsánægju í hjúkrun á íslenskum sjúkrahúsum. Aðferð: Rannsóknin var megindleg lýsandi þversniðs- rannsókn. Notaður var skriflegur spurningalisti, Nursing Teamwork Survey-Icelandic (NTS-Icelandic), en þar er spurt um teymisvinnu í hjúkrun ásamt bakgrunnsbreytum. Spurt var um 33 staðhæfingar sem falla á fimm þætti: gagnkvæmt traust, stefnu teymis, gagnkvæman stuðning, sameiginlega sýn og teymis- forystu. Í úrtaki rannsóknarinnar voru allir fastráðnir starfsmenn hjúkrunar á legudeildum lyflækninga, skurðlækninga og gjörgæslu á íslenskum sjúkrahúsum, samtals 925 starfsmenn. Svörun var 70%. Niðurstöður: Heildarteymisvinna mældist 3,89 (SF=0,48) á kvarðanum 1-5. Af undirþáttum var þátturinn sameiginleg sýn/hugsunarháttur með hæsta meðaltalið (M=4,20; SF=0,49) og teymisforysta með lægsta meðaltalið (M=3,66; SF=0,77). Tölfræðilega marktæk jákvæð tengsl mældust milli heildarteymisvinnu og ánægju í núverandi starfi (r=0,395; p<0,001) og ánægju með starfsgrein (r=0,206, p<0,001) og allir þættir teymisvinnu höfðu tölfræðilega marktæka jákvæða fylgni við ánægju í núverandi starfi og ánægju með starfsgrein (p≤0,05). Þeir sem höfðu áform um að hætta í núverandi starfi innan árs töldu heildarteymisvinnu marktækt lakari en þeir sem ekki höfðu í hyggju að hætta (t(613)=-2,247; p=0,025). Þegar einstakir þættir teymisvinnu voru skoðaðir reyndist einn þáttur, sameiginleg sýn, tölfræði- lega marktækt tengdur áformum um að hætta í núverandi starfi (t(613)=-2,103; p=0,036). Þeir sem höfðu í hyggju að hætta í núverandi starfi töldu sameiginlega sýn lakari en samanburðarhópurinn. Ályktanir: Teymisvinna er almennt góð á sjúkrahúsum landsins en tækifæri eru til að styrkja hana enn frekar, ekki síst teymisforystu. Góð teymisvinna tengist ánægju í starfi og áformum um að hætta og því er mikilvægt að bregðast við þar sem þörf er á íhlutun. Frekari rannsókna er þörf á teymisvinnu á íslenskum sjúkrahúsum og tengslum teymisvinnu við afdrif og árangur starfsmanna og sjúklinga. Mikilvægt er að greina hvaða íhlutanir eru árangursríkastar til lengri tíma litið. Lykilorð: Hjúkrun, sjúkrahús, starfsánægja, teymisvinna.Aim: The aim of this study was to shed light on nursing teamwork and its relationship with job satisfaction in Icelandic hospitals. Method: This was a descriptive cross-sectional quantitative study. The Nursing Teamwork Survey-Icelandic (NTS-Icelandic), a paper-and-pencil questionnaire, was used for data collection on teamwork and background variables. The NTS includes 33 statements on teamwork within five themes: trust, team orientation, back-up, shared mental model and team leadership. The sample consisted of all permanently employed nursing staff in medical, surgical and intensive care inpatient units in Icelandic hospitals, a total of 925 individuals. Response rate was 70%. Results: The overall mean teamwork score was 3.89 (SD=0.48) on a 1-5 scale. The subtheme with the highest mean score was shared mental model (M=4.20, SD=0.49) and the subtheme with the lowest mean score was team leadership (M=3.66, SD=0.77). The overall team mean score had a statistically significantly positive relationship with satisfaction with current position (r=0.395, p
Lu00FDsing
Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinnCollections