Fæðuval ungra Íslendinga með geðrofssjúkdóma og þróun líkamsþyngdar þeirra á 8 til 12 mánaða tímabili
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Ingibjörg GunnarsdóttirHelga Guðrún Friðþjófsdóttir
Ólöf Guðný Geirsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
Laufey Steingrímsdóttir
Inga Þórsdóttir
Hólmfríður Þorgeirsdóttir,
Nanna Briem
Issue Date
2017-06-06
Metadata
Show full item recordOther Titles
Dietary intake of young Icelanders with psychotic disorders and weight development over an 8-12 months periodCitation
Læknablaðið 2017,103(6):281-286Abstract
Tilgangur: Tíðni lífsstílssjúkdóma er hærri meðal einstaklinga með geðrofssjúkdóma en almennings. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma, en fæðuval þessa hóps hefur aldrei verið kannað hérlendis áður. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru þjónustuþegar Laugarássins (n=48, 18-30 ára), sem sóttu þjónustu á því tímabili sem gagnaöflun fór fram (júlí- ágúst 2016). Fæðuval og næringargildi fæðu var metið með sólarhringsupprifjun á mataræði. Niðurstöður voru bornar saman við ráðleggingar Embættis landlæknis og niðurstöður landskönnunar á mataræði 2010-2011 fyrir sama aldurshóp (n=250). Þróun líkamsþyngdar síðastliðna 8-12 mánuði var metin út frá skráðum upplýsingum í sjúkraskrá (Sögu). Niðurstöður: Neysla á ávöxtum, fiski, mjólkurvörum, jurtaolíum og lýsi var marktækt lægri meðal þjónustuþega en hjá þátttakendum í landskönnun 2010-2011, en neysla á sælgæti og gosdrykkjum hærri (p<0,001). Hlutfall viðbætts sykurs af heildarorku var hærra í fæði þjónustuþega (15% á móti 12%) og hlutfall próteina lægra (16% á móti 18%) heldur en í viðmiðunarhópnum. Hlutfall ómega-3 fitusýra í fæði og neysla D-vítamíns var lægri á meðal þjónustuþega en meðal þátttakenda í landskönnun og töluvert undir ráðleggingum (0,04 ± 0,3% ómega-3 af heildarorku á móti 1,2 ± 0,6%, p<0,001 og 3,1 ± 4,2 µg D-vítamín/dag á móti 5,6 ± 6,5 µg/dag, p<0,001). Tæplega 40% þjónustuþega hafði þyngst um >5% af upphafsþyngd sinni á 8-12 mánaða tímabili. Ályktanir: Fæðuval ungs fólks með geðrofssjúkdóma samræmist ekki opinberum ráðleggingum um fæðuval og er lakara en fæðuval viðmiðunarhópsins. Mikilvægt er að þróa leiðir til að bæta fæðuval og þar með næringargildi fæðu hópsins.Introduction: The prevalence of lifestyle related diseases is higher among people with psychotic disorders than the general population. The aim was to assess dietary intake of young people with psychotic disorders for the first time in Iceland. Material and methods: Subjects were young people (n=48, age 18-30y) with psychotic disorders. Dietary intake was assessed by a 24-hour recall in July-August 2016, and compared with official recommendations and intake of the general public (n=250, age 18-30y). Body weight in the past eight to 12 months, was retrieved from medical records. Results: Consumption of fruits, fish, dairy products, vegetable and fish oil was significantly lower among subjects when compared with the general public, while their soft drink and sweets consumption was higher (p<0.001). Furthermore, the contribution of added sugar was higher (15E% vs. 12E%) and protein intake lower (16E% vs. 18E%). Consumption of omega-3 fatty acids and vitamin D was lower among subjects than the general public and lower than recommended (0.04±0.3% omega-3 of total energy vs. 1.2±0.6%, p<0.001 and 3.1±4.2 µg vitamin D/day vs. 5.6±6.5 µg/day, p<0.001). Almost 40% of the subjects had gained >5% of their initial body weight in the past 8-2 months. Conclusion: Diet of young people with psychotic disorders is not consistent with recommendations and is worse than the diet of their peers in the general population. It is important to find ways to improve the diet and thereby nutrient intake of the group.
Description
To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked FilesAdditional Links
http://www.laeknabladid.is/tolublod/2017/06/nr/6444Rights
Archived with thanks to Læknablaðiðae974a485f413a2113503eed53cd6c53
10.17992/lbl.2017.06.141
Scopus Count
Collections