Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Anna Lucie BjarnadóttirIssue Date
2018-12
Metadata
Show full item recordCitation
Anna Lucie Bjarnadóttir. Hafa verkir eftir fæðingu áhrif á tengslamyndun móður og barns? Ljósmæðrablaðið. 2018;96(2): 18-19.Abstract
Flestir upplifa verki. Þeir geta verið þreytandi og truflandi. En hvað gerir þetta móður með nýfætt barn? Hvernig gengur henni að tengjast þessari nýju manneskju þegar henni sjálfri líður illa? Höfundur hefur sjálfur sinnt sængurkonu með það mikla verki að ekkert annað komst að. Þegar verkjastillingu var loksins náð var þessi kona uppgefin og steinsofnaði. Samskiptin við barnið voru því lítil og í þau fáu skipti sem konan var verkjalaus og vakandi, þá gat hún ekki einu sinni litið í áttina að barninu. Hún firrtist við að hafa það í herberginu eða að heyra í því. Það kom á daginn að hún tengdi barnið við verkina. Á endanum löguðust verkir sængurkonunnar og hún varð orkumeiri. Með mikilli hvatningu og stuðningi fjölskyldu, vina og starfsfólks samþykkti hún að reyna að hafa barnið hjá sér og fljótlega fór henni að líða vel með barnið hjá sér. Góð tengslamyndun hófst á endanum en sérstakt eftirlit var sett upp hjá ljósmóður út af því hve illa þetta byrjaði. Í þessari grein sem byggir á fræðilegri ritgerð úr námskeiðinu Inngangur að ljósmóðurfræði verður athugað hvort tengsl séu milli verkja móður og tengslamyndunar hennar við barnið sitt.Description
To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked DownloadAdditional Links
https://www.ljosmaedrafelag.is/utgafa/ljosmaedrabladidCollections