Þættir sem hafa áhrif á ákvörðun lækna um lyfjameðferð: Rannsókn í heilsugæslu á Íslandi
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
2021-11
Metadata
Show full item recordOther Titles
Factors affecting general practitioners’ choice of drug therapy: A study in primary healthcare in IcelandCitation
Yrsa Ívarsdóttir, Jón Steinar Jónsson, Kristján Linnet, Anna Bryndís Blöndal. Þættir sem hafa áhrif á ákvörðun lækna um lyfjameðferð: Rannsókn í heilsugæslu á Íslandi. Læknablaðið. 2021; 107(11): 522-27. doi: 10.17992/lbl.2021.11.660Abstract
INNGANGUR Markmið rannsóknarinnar var að kanna ýmis atriði sem geta haft áhrif á ákvarðanir lækna í heilsugæslu á Íslandi um lyfjameðferð. Jafnframt hvaða atriði kynnu að vera hindrun við ákvarðanatöku. Að lokum að greina hvaða þættir gætu frekar auðveldað ákvarðanatöku. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Sendur var rafrænn spurningalisti með tölvupósti til allra starfandi lækna í heilsugæslu á Íslandi. Spurningalistinn var samsettur úr lokuðum spurningum, opnum textaboxum og röðunarspurningum. Excel var notað við greiningu gagnanna. NIÐURSTÖÐUR Alls svöruðu 93 læknar spurningalistanum og var svarhlutfallið 40,7%. Niðurstöðurnar sýna að læknar telja að klínískar leiðbeiningar, upplýsingar í sérlyfjaskrá og eigin reynsla séu mikilvægastar við val á lyfjameðferð. Þá eru læknar mjög sammála um að skortur á milliverkanaforriti sem tengist sjúkraskrá sjúklings sé hamlandi þáttur við ákvarðanatöku. Þau atriði sem mikilvægast væri að laga til að styðja við ákvarðanir lækna eru innlendir lyfjalistar og milliverkanaforrit sem tengist sjúkraskrá sjúklings. ÁLYKTUN Niðurstöður benda á þætti sem gagnast læknum í heilsugæslu við ákvörðun um lyfjaval, svo sem lyfjalista, milliverkanaforrit, aðgengilegar upplýsingar um lyfjameðferð sjúklinga, mismunandi tímalengd viðtala, gagnreyndar upplýsingar um ný lyf, aðkomu klínískra lyfjafræðinga að starfi heilsugæslu.Introduction: This study aimed to analyse several factors that influence the decision-making of primary care physicians in Iceland in their choice of drug therapy for their patients. Also, to find which factors can act as a hindrance in making the best choices. Finally, to analyse which elements could be most important in facilitating decisions. Material and methods: A questionnaire was sent by e-mail to physicians working in primary care in Iceland. The questionnaire comprised closed questions, open text boxes, and ranking questions. The data was processed and analysed using Microsoft Excel. Results: The total number of primary care physicians who responded to the questionnaire was 93, a response rate of 40.7% of all the primary care physicians. The results reveal that physicians working in primary care consider clinical guidelines, the Icelandic National Formulary, and personal experience to be the most important factors when choosing a medication. Primary care physicians strongly agree that the lack of drug interaction software connected to medical records is a shortcoming. The most important factors that need improvement to facilitate primary care physicians' decision-making are drug formularies and interaction software. Conclusion: The results suggest some factors that support physicians in primary care in making decisions when choosing drug therapy, such as a drug formulary, drug interaction software, information about patients’ drug therapy, variable length in face-to-face consultations, evidence based information on new drugs, and counselling provided by clinical pharmacists.
Description
To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked DownloadAdditional Links
https://www.laeknabladid.is/tolublod/2021/11/nr/7858Collections