Smitsjúkdómar og sýkingavandamál : hvað er á döfinni? : hvers er að vænta? [ritstjórnargrein]
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Sigurður B. ÞorsteinssonIssue Date
1996-01-01
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1996, 82(1):6-7Abstract
Allmörg læknatímarit hafa ákveðið aö helga nokkur eintök á árinu 1996 sama viðfangsefni. Það er við hæfi að sýkingar og sýkingavandamál hafi orðið fyrir valinu til að hleypa þessu samstarfi af stokkunum því að á síðustu árum hefur öllum orðið ljóst að á þessu sviði eru mörg óleyst verkefni bæði gömul og ný. Lyfjaónæmi sýkla er líklega það vandamál sem vekur mestan ugg meðal lækna. Hérlendis hefur mest verið fjallað um penicillin ónæma pneumókokka. Rannsóknir Karls G. Kristinssonar og félaga hafa vakið heimsathygli. Ekki sér fyrir endanlega lausn á þeim vanda en líklegt er þó að lykilinn sé að finna í skynsamlegri notkun sýklalyfja. Það verður eitt af höfuðviðfangsefnum smitsjúkdómalækna og annarra sem málið varða að stuðla að beinskeyttari notkun sýklalyfja bæði innan jafnt sem utan sjúkrahúsa.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections