Útrýming algengustu kynsjúkdómanna : órar eða raunhæfur möguleiki? [ritstjórnargrein]
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Sigurður B. ÞorsteinssonIssue Date
1995-07-01
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1995, 81(7):522-3, 525Abstract
Fundurinn var haldinn í lok áttunda áratugarins og var dæmigerður fyrir norrænt samstarf. Fulltrúar Norðurlandanna stóðu upp hver af öðrum og skýrðu hvers vegna tíðni lekanda hafði minnkað verulega seinustu tvö til þrjú árin, eða allt aö 40 til 50%. Daninn taldi árangurinn tvímælalaust vera því að þakka að leit að rekkjunautum hafi verið efld, Finninn tók í sama streng og minntist einnig á eflingu kynsjúkdómadeilda í stærstu borgum Finnlands. Norðmaðurinn benti hróðugur á að við þjóðvegina í kringum Osló hefðu verið sett upp vegaskilti (í landi þar sem slíkt er annars harðbannað, samanber málverkið af Gro Harlem á fjósveggnum), þar sem lesa mátti uggvænlegar staðreyndir eins og „19 Norðmenn fá lekanda í kvöld". Á öðrum skiltum var áróður fyrir smokkanotkun. Svíar voru djarfari enda var þetta á þeim tíma sem alheiminum var talin trú um ótrúlegt frjálslyndi þeirra í ástamálum sem líklega var mýta ættuð frá meistara Bergmann. Þeir sýndu auglýsingar sem höfðu verið sýndar í sjónvarpi og í kvikmyndahúsum. Ein var um þau skötuhjú, Rómeó og Júlíu, þar sem Júlía hvíslar í eyra riddarans að hér verði ekki gert do-do nema verja sé með í för og Rómeó sést síðan klifra niður af svölunum sneyptur á svip. Landinn hafði stórbætt greiningaraðferðir og hafið skimun hjá ófrískum konum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections