Leitin að sannleikanum : Norðurlönd tengjast Cochrane gagnabankanum í klínískum rannsóknum [ritstjórnargrein]
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Jóhann Ág. SigurðssonÚtgáfudagur
1994-09-01
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1994, 80(7):282-3Útdráttur
Nú á tímum þrenginga verða heilbrigðisstéttir að tryggja það að fjármunum til heilbrigðismála sé varið á sem bestan og hagkvæmastan hátt. Í nýlegum leiðara í BMJ (1) var bent á að breskir skattgreiðendur gætu ekki endalaust greitt fyrir læknismeðferð, sem hefði ekki verið sýntfram á að gerði gagn — og það sem verra væri — fyrir meðferð sem búið vœri að sanna að gerði ekkert gagn. Hér er um alvarlegar ábendingar að ræða sem vert er að gefa frekari gaum. Viðleitni heilbrigðisstétta til þess að svara áleitnum spurningum um læknisfræðilegan árangur fer vaxandi. Rannsóknum fjölgar stöðugt, en þær eru mismunandi að gæðum og gefa því oft misvísandi niðurstöður. Þetta veldur því að erfitt getur verið fyrir fagfólk að túlka þær eða draga réttar ályktanir. Reyndar er nær ókleift fyrir lækna að fylgjast með öllum þeim aragrúa rannsókna sem birtar eru í fagtímaritum. Margir velja því þá leið aö lesa yfilitsgreinar um ákveðin efni. Slíkar greinar eru oft skrifaðar af þekktum eða valinkunnum fræðimönnum, sem oft hafa afgerandi áhrif á sínu fræðisviöi. Reynslan hefur hins vegar sýnt, að slíkar yfirlitsgreinar styðjast ekki alltaf við úr-val vel staðfestra niðurstaðna og geta því leitt til rangra ályktana (2).Lu00FDsing
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenVefslóð
http://www.laeknabladid.isCollections