Mat á alvarleika persónuleikavandamála : athugun á spurningalistanum Severity Indices of Personality Problems (SIPP) í úrtaki íslenskra háskólanema
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Ragnar P. ÓlafssonHjálmar S. Ásbjörnsson
Olga K. Pétursdóttir
Sigríður J. Guðmundsdóttir
Jakob Smári
Issue Date
2009
Metadata
Show full item recordCitation
Sálfræðiritið 2009, Fylgirit 1. 14:42–7Abstract
Spurningalistinn Severity Indices of Personality Problems eða SIPP er nýr spurningalisti sem metur alvarleika vandamála sem oft tengjast persónuleikaröskunum. Listinn er til í tveimur útgáfum og inniheldur önnur 118 atriði (SIPP- 118) sem skiptast á alls 16 undirþætti sem tilheyra fimm yfirþáttum. Hin útgáfan er styttri og inniheldur 60 atriði (SIPP-60) sem notuð eru til að reikna út skor þátttakenda á yfirþáttunum fimm. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar á SIPP listunum í úrtaki 634 háskólanema. Niðurstöður sýndu að áreiðanleiki 13 af 16 undirþáttum SIPP-118 var ásættanlegur eða góður ( 0,70). Í leitandi þátttagreiningu voru þrír af fimm þáttum sambærilegir við niðurstöður erlendrar rannsóknar á SIPP-118. Skor á yfirþáttum SIPP-60 höfðu miðlungs til sterka fylgni við skor á spurningalista um lífsánægju þannig að meiri alvarleiki persónuleikavanamála tengdist minni lífsánægju. Marktækur munur var á meðaltölum á öllum yfirþáttum SIPP-60 milli hópa sem höfðu lág, miðlungs eða há skor á skimunarlista fyrir persónuleikaraskanir. Fyrstu niðurstöður á íslenskri þýðingu SIPP spurningalistans benda til að próffræðilegir eiginleikar listans séu góðir en kanna þarf betur þátttabyggingu listans. Áframhaldandi rannsóknir ættu einnig að beinast að notagildi listans við greiningu og mat á árangri meðferðar við persónuleikaröskunum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.sal.isCollections