Íslensk börn og unglingar með höfuðáverka : hve margir þurfa sérhæfða fræðslu, endurhæfingu eða eftirfylgd og hvers konar íhlutun er við hæfi?
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Jónas G. HalldórssonFlekkøy, Kjell M
Guðmundur B. Arnkelsson,
Kristinn Tómasson
Hulda Brá Magnadóttir
Eiríkur Örn Arnarson
Issue Date
2009
Metadata
Show full item recordCitation
Sálfræðiritið 2009, Fylgirit 1. 14:73-6Abstract
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fjölda barna og unglinga, sem lýsa eftirstöðvum fjórum árum eftir höfuðáverka, og skoða eðli þessara kvartana, og meta þannig þörf fyrir sérhæfða íhlutun af mismunandi toga. Gögnum var safnað á framvirkan hátt um alla sjúklinga 0-19 ára, sem greindir voru með höfuðáverka (ICD-9 850-854) á Borgarspítalanum á einu ári, 1992-1993 (n=405). Fjórum árum síðar var spurningalisti um eftirstöðvar áverka sendur til sjúklinga. Alvarleikastig byggt á eðli kvartana var metið samkvæmt viðmiðum Glasgow Outcome Scale (GOS), barnaútgáfu. Alls lýstu 39 sjúklingar lýstu eftirstöðvum höfuðáverka fjórum árum síðar. Samkvæmt viðmiðum GOS lýstu 19 þeirra góðri útkomu (e. good outcome), 14 lýstu miðlungs hömlun (e. moderate disability), 2 lýstu alvarlegri hömlun (severe disability) og 4 höfðu látist vegna heilaskaða. Nýleg athugun bendir til þess að ekki hafi orðið fækkun á börnum og unglingum sem hljóta alvarlegri höfuðáverka (ICD-9 851- 854) á ári hverju.Niðurstöður benda til þess að tugir íslenskra barna og unglinga þarfnist sérhæfðrar íhlutunar og eftirfylgdar á ári hverju vegna afleiðinga höfuðáverka. Íhlutunin getur verið mjög breytileg, allt frá fræðslu fyrir foreldra til endurhæfingar og eftirfylgdar til lengri tíma. Íhlutunin þarf að taka mið af vanda hvers og eins.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.sal.isCollections