Áhrif og tengsl catechol-O-methyltransferase (COMT Val158Met) breytileikans á alvarleika ADHD einkenna og meðfylgjandi hegðunarröskun
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Haukur Örvar PálmasonMoser, D
Sigmund, J
Vogler, C
Hänig, S
Schneider, A
Seitz, C
Marcus, A
Meyer, J
Freitag, C
Issue Date
2009
Metadata
Show full item recordCitation
Sálfræðiritið 2009, Fylgirit 1. 14:77-8Abstract
Athyglisbrestur og ofvirkni (ADHD) er algeng taugaþroskaröskun sem getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlögun einstaklinga1. Nýlegar rannsóknir sýna að rúmlega 5 af hundraði barna og unglinga glíma við ADHD2. Fylgiraskanir eins og mótþróahegðun, hegðunarröskun, kvíði eða depurð eru einnig algengar hjá einstaklingum með ADHD3. Erfðir og umhverfisþættir gegna mikilvægu hlutverki í ADHD, þar sem að erfðir geta útskýrt 60-90% einkenna og umhverfisþættir um 20 til 30% einkenna4. Orsakir ADHD eru líffræðilegar og benda rannsóknir til að orsaka sé að leita í truflun í boðefnakerfi heilans á stöðum sem gegna mikilvægu hlutverki í stjórn hegðunar, þar sem að framheilinn spilar hvað stærst hlutverk5. Í framheilanum gegnir COMT (catechol-Omethyltransferase) ensímið lykilhlutverki í niðurbroti dópamíns6. Fundist hefur breytileiki í einum basa (Val158Met, rs4680) í erfðaefninu á milli einstaklinga, sem veldur því að þegar A samsæta er til staðar er COMT ensímið mun lengur að brjóta niður dópamín en þegar G samsæta er til staðar7. Þetta veldur því að þeir sem eru með A samsætuna eru með meira dópamín í framheilanum samanborið við þá sem eru með G samsætuna. Rannsóknir benda til þess að COMT Val158Met breytileikinn gæti haft áhrif á árásargirni hjá einstaklingum, þar sem niðurstöður benda til að líkur á ofbeldisfullu viðbragði við áreiti aukist eftir því sem að magn dópamíns í framheila verður meira8.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.sal.isCollections