Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
2009
Metadata
Show full item recordCitation
Sálfræðiritið 2009, Fylgirit 1. 14:90-4Abstract
Rannsóknir á einstaklingum með ættarsögu um Alzheimers-sjúkdóm hafa sýnt fram á aukna áhættu á að þeir þrói með sér heilabilunarsjúkdóm. Ennfremur hefur verið sýnt fram á að undirliggjandi vitræn skerðing sé greinanleg með taugasálfræðilegum prófum nokkru áður en klínísk einkenni koma fram. Rannsóknir á börnum Alzheimers-sjúklinga eru af skornum skammti. Markmið rannsóknarinnar var að skoða þróun vitrænnar getu hjá miðaldra börnum Alzheimerssjúklinga, yfir 7 ára tímabil. Þátttakendur voru valdir af handahófi úr íslenskri erfðarannsókn sem verið hefur í gangi frá árinu 1998. Þátttakendur voru 83 börn Alzheimerssjúklinga á aldrinum 47-73 ára og 30 einstaklingar í viðmiðunarhópi á aldrinum 48- 73 ára sem höfðu enga ættarsögu um heilabilunarsjúkdóm. Vitræn geta var metin tvisvar yfir 7 ára tímabil með taugasálfræðilegum prófum sem mæla áttun, yrt og óyrt minni, mál, einbeitingu, hugrænan hraða og sjónrænan hraða og úrvinnslu. Þátttakendur með þekktan mið- eða úttauga sjúkdóm voru útilokaðir frá rannsókninni. Niðurstöður gáfu ekki til kynna mun á frammistöðu hópanna tveggja á taugasálfræðilegu prófunum yfir 7 ára tímabil. Þessar niðurstöður gefa til kynna að undirliggjandi vitræn skerðing hefjist eftir 60 ára aldur hjá börnum Alzheimers-sjúklinga, ólíkt niðurstöðum margra annarra rannsókna.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.sal.isCollections