Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
1992-04-01
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1992, 78(4):141-3Abstract
Atvinnuhorfur eru ofarlega á baugi hjá mörgum læknum og samtökum þeirra. Samtök ungra sjúkrahúslækna í Evrópu, PWG (Permanent Working Group of European Junior Hospital Doctors), gerðu nýlega könnun á atvinnuhorfum og atvinnuleysi lækna í V-Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn sem samræmd könnun á þessu sviði er gerð í löndum V-Evrópu. Voru niðurstöður hennar kynntar á »European Manpower Symposium« í Flórens á Ítalíu 31. október 1991 (1). Könnunin fór fram á tímabilinu 1. janúar 1990 til 25. október 1991 og náði til allra V-Evrópuríkja nema Lúxemborgar, Belgíu og Grikklands. Tilgangur könnunarinnar var þríþættur: 1. Afla upplýsinga um fjölda lækna, aldur, kyn og hversu margir væru atvinnulausir. 2. Spá um atvinnuhorfur næsta áratugar og kanna sérstaklega hvert framboð og eftirspurn yrði árið 2000. 3. Bera saman atvinnuástand milli landa. Könnunin var framkvæmd á þann hátt að ungir læknar öfluðu upplýsinga og útfylltu stöðluð spurningaeyðublöð. Meðal annars var safnað upplýsingum um fjölda lifandi lækna, aldur og kyndreifingu þeirra, dánartíðni, eftirlaunaaldur og tímabundin starfsleyfi. Einnig var aflað upplýsinga um fjölda, kyn og aldur nýútskrifaðra lækna, námslengd, búferlaflutninga milli landa, laus störf, atvinnuleysi og hversu margir læknar fengjust við störf sem ekki samræmdust menntun þeirra (underemployment). Á þessum upplýsingum var byggð spá um atvinnuhorfur lækna í allri V-Evrópu og hverju landi fyrir sig varðandi tímabilið 1990-2010.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/OpenAdditional Links
http://www.laeknabladid.isCollections