Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Bryndís BenediktsdóttirIssue Date
2009-11-01
Metadata
Show full item recordOther Titles
Health, quality of live and money. Using cost-effectiveness analysis for setting health priorities [editorial]Citation
Læknablaðið 2009, 95(11):743Abstract
Aðstæður í íslensku samfélagi hafa breyst. Fjárframlög til heilbrigðismála skerðast og ljóst er að draga verður úr þjónustu. Við þessar aðstæður þarf að skoða alla kostnaðarliði gaumgæfilega og nýta þá skoðun til þess að tiltækt fé komi að sem bestum notum. Tryggja þarf að kunnátta varðveitist í heilbrigðisþjónustunni, að þeir sem veikastir eru hafi forgang til þjónustu og hún nýtist jafnframt sem flestum. Greining á kostnaði þarf að vera gagnsæ og sundurliðuð þannig að hægt sé að draga ályktanir af niðurstöðum í heild, en samtímis varpa ljósi á einstaka kostnaðarliði þar sem ná má hagræðingu. Kostnaðargreining algengra langvinnra sjúkdóma er sérlega mikilvæg við þessar aðstæður. Ef unnt er að bera saman milli landa kostnaðarlið mismunandi þjónustueininga er það augljós viðbótarkostur.1 Fagmennska þarf að vera í fyrirrúmi þegar kemur að framkvæmd og túlkun, sérstaklega ef gera á breytingar á þjónustu sem byggjast á kostnaðarrannsóknum. Kostnaðarrannsóknir hafa oft verið gagnrýndar fyrir að meta einungis afturvirkt kostnað við tiltekinn sjúkdóm á ársgrundvelli, án þess að kanna líkur á breytingum á kostnaði í framtíð og án þess að reikna með þeim ágóða sem felst í betri heilsu sem hlýst af meðferð. Nýrri aðferðir við kostnaðargreiningu leggja áherslu á að reyna að meta einnig hver kostnaður muni verða í framtíð með því að taka með í reikninginn nýgengi, algengi og framvindu sjúkdóms á komandi árum.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.laeknabladid.isCollections
Related articles
- Health-related quality of life--an economist's perspective.
- Authors: de Pouvourville G, Borget I, Schlumberger M
- Issue date: 2007 Dec
- [Cost-effectiveness analysis of treatment for end-stage renal disease].
- Authors: Asgeirsdóttir TL, Asmundsdóttir G, Heimisdóttir M, Jónsson E, Pálsson R
- Issue date: 2009 Nov
- Health economics: a framework for health service decision-making.
- Authors: Bowie RD
- Issue date: 1991 Mar 13
- [Prioritization and health--should maximum-price life years be introduced?].
- Authors: Kristiansen IS, Gyrd-Hansen D
- Issue date: 2007 Jan 4
- [Prioritization of health services in Oregon--what can we learn?].
- Authors: Hansson LF, Ruyter KW, Lie RK
- Issue date: 1991 Nov 20