Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
2006
Metadata
Show full item recordCitation
Geðvernd 2006, 35(1):23-6Abstract
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið kom að máli við Heilsugæsluna haustið 2003 og óskaði eftir því að sett yrði á laggirnar geðteymi við heimahjúkrun er sinnti þeim sem ættu við geðræn vandamál að stríða. N okkur undirbúningur var við stofnun teymisins og var haft samráð bæði við geðsvið L SH og Geðhjálp auk annarra aðila sem sinnt hafa þessum hópi. R áðinn var verkefnastjóri, Guðný Anna Arnþórsdóttir geðhjúkrunarfræðingur og vann hún í nánu samstarfi við fyrrnefnda aðila ásamt forstöðumanni heimahjúkrunar og hjúkrunarforstjóra Heilsugæslunnar að undirbúningi teymisins1. Geðteymi heimahjúkrunar tók til starfa í mars 2004, en það var ekki fullmannað fyrr en í apríl sama ár. Í teyminu starfa nú fjórir hjúkrunarfræðingar og tveir sjúkraliðar. N okkrir starfsmannanna eru í hlutavinnu. N okkur tími og vinna var hjá hinu nýstofnaða teymi að skipuleggja starfsemina. Áhersla er lögð á að teymið haldi vel utan um alla skráningu og sé vel að sér varðandi þau meðferðarúrræði sem í boði eru í samfélaginu og þekki til þeirra stofnana( úrræða) sem skjólstæðingarnir eiga samskipti við ásamt því að viðhalda faglegri þekkingu1.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Collections