Ristilkrabbamein á Borgarspítala 1975-1987 og lífshorfur eftir aðgerð
Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
1990-10-01
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1990, 76(8):399-403Abstract
Ristilkrabbamein er eitt algengasta krabbameinið hérlendis, þriðja í röðinni hjá konum og það fjórða í körlum. Tíðnin vex með aldrinum og fjöldi þeirra eykst því með vaxandi fjölda eldra fólks. Upplýsingar um lífslíkur m.t.t. stigunar eftir aðgerð liggja ekki fyrir hérlendis. Tilgangur rannsóknarinnar var að ákvarða lífslíkur eftir aðgerð vegna ristilkrabbameins á skurðdeild Borgarspítalans. Afturvirk rannsókn var gerð á þeim sjúklingum skurðdeildar Borgarspítalans, sem gengust undir aðgerð vegna ristilkrabbameins 1975-1987. Dukes-flokkun var notuð við stigun sjúkdómsins. Lifun var metin með líftöflu að hætti Kaplan-Meyer og miðast við 1. janúar 1989. Alls fundust 165 sjúklingar, 89 konur og 76 karlar. Þrettán sjúklingar féllu í Dukes-stig A, 71 sjúklingur í Dukes-stig B og 28 í Dukes-stig C. Sextíu og sex æxli voru í hægri hluta ristilsins, 23 æxli í þverristli, 15 í vinstri hluta ristilsins og 59 í bugaristli. Heildardánartala eftir aðgerð var "5%. Dánartala eftir læknandi aðgerð var ~ 2%, eftir líknandi aðgerð 11%. Líkindin á fimm ára lifun reyndust svipuð í Dukes-stigi A og B eða í kringum 65-70%, en í kringum 40% við Dukes-stig C. Ef um líknandi aðgerð var að ræða voru ekki líkindi á lifun eftir þrjú ár frá aðgerð. Það er athyglisvert að tæplega þriðjungur sjúklinga er ólæknandi við greiningu. Aðeins helmingur sjúklinga fellur í hóp Dukes-A eða B. Dánartala við aðgerð er lág. Ef einhver stórbreyting til batnaðar á að verða á lifun við þennan sjúkdóm, verður að greina hann fyrr.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.laeknabladid.isCollections