Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Issue Date
1990-05-15
Metadata
Show full item recordCitation
Læknablaðið 1990, 76(5):229-35.Abstract
Nýleg athugun á orsökum lungnabólgu á Borgarspítala leiddi í ljós að ekkert tilfella spítalalungnabólgu reyndist af völdum Gram-neikvæðra stafbaktería. Undanfari flestra lungnabólgna er talin sýklun (colonization) baktería í hálsi og hefur algengi sýklunar Gram-neikvæðra stafbaktería hjá ýmsum sjúklingahópum verið allt frá 2% til 40% í fyrri rannsóknum. Lítið er hins vegar vitað um faraldsfræði sýklunar af þessu tagi og sérstaklega ekki hvernig og hvort hún breytist með tíma, þar sem flestar fyrri athuganir hafa beinst að algengi eingöngu. Sýklun í hálsi sjúklinga á öldrunarlækningadeild var því könnuð, bæði með sneiðrannsókn (cross-sectional), þar sem ein ræktun var tekin úr hálsi hvers sjúklings án tillits til legutíma, og langtímarannsókn (longitudinal), þar sem hálsræktanir voru teknar vikulega frá innlögn til útskriftar. Til samanburðar voru annars vegar gerðar sneiðrannsóknir á öldruðum einstaklingum á vistheimili og hins vegar á einstaklingum er bjuggu á eigin heimilum. Frá 23,1% sjúklinga í sneiðrannsókninni, sem á sjúkradeild voru, ræktuðust Gram-neikvæðar stafbakteríur, en einungis frá 6,7-9,5% hinna. Við langtímarannsóknina reyndist sýklun vera mjög óstöðug, og minnkaði hlutfall sýklaðra einstaklinga úr 23% við komu á sjúkradeild í 7% á 10. viku sjúkrahúsvistar. Frá einungis 14% sjúklinga með jákvæðar ræktanir ræktaðist sama bakteríutegund í þrjár vikur eða meira samfleytt. S. aureus fannst einungis örsjaldan. Í aðeins einu tilviki var unnt að sýna fram á sýklun sem undanfara og mögulega orsök öndunarfærasýkingar. Niðurstöður þessar gefa til kynna að sýklun í hálsi aldraðra er skammæ og er ekki með vissu áhættuþáttur öndunarfærasýkinga meðal þeirra.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Additional Links
http://www.laeknabladid.isCollections