Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Kristinn TómassonIssue Date
1999
Metadata
Show full item recordCitation
Geðvernd 1999, 28(1):43-9Abstract
Í geðlæknisfræðinni er nauðsynlegt að gera greinarmun á almennum persónusérkennum og sérkennum sem eru þannig að talað er um persónuröskun. Persónusérkenni em fastmótuð og koma fram í afstöðu og atferli persónunnar, þau em varanlegur máti á skilningi hennar, tengslum, tilfinningum, viðbrögðum og hugsun gagnvart sjálfri sér og umhverfinu í persónulegu og félagslegu samhengi. Séu persónusérkennin ósveigjanleg og valdi viðkomandi erfiðleikum í aðlögun, hömlun í samskiptum við aðra eða í starfi eða þau valda vanlíðan einstaklingsins sjálfs er talað um persónuraskanir. Samkvæmt flokkun Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (ICD-10) (1) eru almenn greiningarmörk fyrir þeim eftirfarandi: Varanleg afbrigði í hugsun, hegðun og tilfinningum, sem eru umfangsmikil, stíf og óviðeigandi, sem bitna á einstaklingnum sjálfum eða öðrum og hafa verið stöðug frá æsku eða unglingsárum. Persónuraskanir eru margs konar og flokkaðar eftir þeim sérkennum sem eru mest áberandi hjá einstaklingnum. Áfengissjúklingar eru mjóg oft haldnir öðrum geðröskunum. Þrír af hverjum fjórum sem leita meðferðar vegna áfengissýki á Íslandi eru jafnframt með aðrar geðraskanir, þar á meðal persónuraskanir(2). Þeir sem eru fíknir í önnur vímuefni jafnframt áfenginu eru oftar með aðrar geðraskanir heldur en þeir sem eingöngu eru áfengissjúkir. Þótt sjúklingar séu haldnir fleiri en einni geðröskun segir það yfirleitt ekki til um orskasamband á milli þeirra að öðru leyti en því að þeir sem eru veikir fyrir eru að jafnaði í meiri hættu til að fá annan sjúkdóm og leita frekar meðferðar.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Collections