Average rating
Cast your vote
You can rate an item by clicking the amount of stars they wish to award to this item.
When enough users have cast their vote on this item, the average rating will also be shown.
Star rating
Your vote was cast
Thank you for your feedback
Thank you for your feedback
Authors
Tómas ZoëgaIssue Date
1992
Metadata
Show full item recordCitation
Geðvernd 1992, 23(1):10-4Abstract
Allir kannast við orðatiltækið „að vera felmtri sleginn". Í þessari grein verður orðið felmtursröskun notað sem þýðing á orðinu „panic disorder", og er þá um alvarlegt ástand að ræða, en orðið kvíðakast verður notað sem þýðing á ensku orðunum „panic attack". Ekki er unnt að fjalla um kvíðaröskun, án þess að beina athyglinni að kvíðaköstum og þeim skilmerkjum, sem nauðsynleg eru til þess að greina þau sérstaklega. Geðlæknar hafa lengi litið á kvíða sem ástand, er gæti stigmagnast vegna ytra álags, allt frá eðlilegum ótta eða spennuástandi, í mjög alvarlegan kvíða með einkennum um fælni. Fyrir um það bil þrjátíu árum var farið að gagnrýna þessar kenningar um kvíða (Klein 1964, Klein 1981). Farið var að lýsa felmtri (panic anxiety) sem sérstakri tegund kvíða, og árið 1980 skilgreindi bandaríska geðlæknafélagið felmtur sérstaklega (DSM-III). Ef ástandið er yfirdrifið er talað um felmtursröskun (panic disorder). Athygli hefur beinst að kvíðaköstum og felmtursröskun á seinni árum; (Crowe, Noyes 1986) umfangsmiklar faraldsfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar og meðferðarmöguleikar aukist. Viðtalsmeðferð hefur orðið sérhæfari, einkum atferlismeðferð af ýmsu tagi. Einnig hefur hugræn (cognitive) meðferð verið notuð, auk stuðningsviðtala. Margs konar lyfjum hefur verið beitt með góðum árangri. Rétt meðferð getur bætt líðan og batahorfur einstaklinganna. Grundvöllur meðferðar er áreiðanleg greining. Aðalskilmerki eru margskonar vefræn einkenni. Sum þeirra eru þannig, að fólk heldur að það sé haldið alvarlegum líkamlegum sjúkdómi. Þess vegna er mikilvægt að læknar og aðrir geri sér grein fyrir því, hve algeng þessi vandamál eru og að meðferðarmöguleikar eru margvíslegir.Description
Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)Collections